1. gr.
Frá og með 21. júní til og með 30. júní 2017 eru strandveiðar bannaðar á svæði A, Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 322/2017, um strandveiðar fiskveiðiárið 2016/2017.
2. gr.
Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 2. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. a. lið 2. gr. laga nr. 82/2013, um breytingu á þeim lögum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Fiskistofu, 16. júní 2017.
Þorsteinn Hilmarsson, sviðsstjóri þjónustu- og upplýsingasviðs.
Jón Valgeir Guðmundsson.
|