Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 967/2020

Nr. 967/2020 6. október 2020

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 958/2020, um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr.

Í stað „30“ í 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 20.

 

2. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Til viðbótar við ákvæði reglugerðar þessarar skulu á gildistíma reglugerðarinnar gilda eftirfar­andi takmarkanir í sveitarfélögunum Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósar­hreppi, Hafnar­fjarðar­kaupstað, Garðabæ og Kópavogsbæ: Í stað 1 metra nálægðartakmörkunar í leik­skólum, sbr. 1., 2. og 4. mgr. 3. gr., grunnskólum, sbr. 1. og 3. mgr. 4. gr., framhaldsskólum, sbr. 1. og 4. mgr. 5. gr., og háskólum, sbr. 1. mgr. 6. gr., skal gilda 2 metra nálægðartakmörkun.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi 7. októ­ber 2020.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 6. október 2020.

 

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 6. október 2020