Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1357/2024

Nr. 1357/2024 19. nóvember 2024

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara nr. 237/2014.

1. gr.

Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1020 frá 24. maí 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar neyðarsjúkraflug með þyrlu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 290/2023 frá 27. október 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 23. nóvember 2023, bls. 142–156.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 19. nóvember 2024.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2024