Fjármálastofnanir sem tilkynningarskyldar eru skv. o-lið 1. tölul. 1. gr. FATCA-samnings Íslands og Bandaríkjanna, sbr. auglýsingu nr. 4/2015 í C-deild Stjórnartíðinda, skulu skila upplýsingum vegna ársins 2024 til Skattsins eigi síðar en 20. janúar 2025. Tilkynningar- og upplýsingaskylda tekur til reikninga bandarískra aðila (innlánsreikninga, vörslureikninga, vátryggingarsamninga að tilteknu peningavirði og lífeyrissamninga).
- Skila skal m.a. eftirfarandi upplýsingum um ofangreinda reikninga í eigu einstaklinga og lögaðila ef áreiðanleikakönnun skv. FATCA-samningi Íslands og Bandaríkjanna leiðir í ljós að reikningshafi sé bandarískur aðili eins og hann er skilgreindur í ofangreindum samningi:
- Nafni, heimilisfangi og bandarískri skattkennitölu sérhvers tilgreinds bandarísks reikningshafa (einstaklinga og lögaðila) sem á eða fer með tilkynningarskyldan reikning. Ef reikningshafi er lögaðili sem ekki telst vera bandarískur en áreiðanleikakönnun skv. FATCA-samningnum leiðir í ljós að lögaðilinn hefur einn eða fleiri stjórnandi aðila, sem teljast vera bandarískir aðilar skal skila upplýsingum um nafn, heimilisfang og bandaríska skattkennitölu sérhvers stjórnandi aðila.
- Reikningsnúmeri eða ígildi þess.
- Reikningsstöðu í árslok 2024. Hafi reikningi verið lokað á árinu 2024 skal staða reiknings vera núll.
- Til viðbótar við framangreindar upplýsingar skal einnig skila eftirfarandi upplýsingum:
- Sé um að ræða innlánsreikning skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra eða tekjufærðra vaxta á árinu 2024.
- Sé um að ræða vörslureikning skal skila upplýsingum um verga heildarfjárhæð greiddra vaxta, verga heildarfjárhæð arðs og verga heildarfjárhæð annarra tekna sem myndast vegna þeirra eigna sem viðkomandi reikningur hefur að geyma og hafa verið færðar sem tekjur inn á reikninginn (eða með tilliti til reikningsins) á árinu 2024. Þá skal jafnframt skila upplýsingum um vergan heildarafrakstur af sölu eða innlausn eignar sem hefur verið greiddur eða færður sem tekjur inn á reikninginn á árinu 2024.
- Sé um að ræða vátryggingarsamning að tilteknu peningavirði eða lífeyrissamning skal skila upplýsingum um peningavirði eða endurkaupsvirði.
- Sé reikningshafi óvirkur erlendur lögaðili sem ekki er fjármálastofnun (e. Passive NFFE), sbr. 3. tölul. B-liðar VI. liðar í I. viðauka við FATCA-samninginn skal upplýsa um nöfn, heimilisföng og bandarískar skattkennitölur þeirra eigenda lögaðilans sem teljast bandarískir aðilar.
- Ef reikningur er skilgreindur sem eldri reikningur samkvæmt FATCA-samningnum og reikningshafi veitir ekki nauðsynlegar upplýsingar um mögulega skattskyldu sína í Bandaríkjunum, skal tilkynningarskylda fjármálastofnunin fara með reikninginn sem andstöðureikning og senda allar nauðsynlegar upplýsingar til Skattsins, sbr. tölul. 1-3 hér að framan.
- Fjármálastofnanir sem falla undir tilkynningarskyldu skulu ætíð skila skýrslum til Skattsins í samræmi við skilalýsingu þrátt fyrir að hafa enga reikninga haft í eigu eða umráðum bandarískra aðila og staðfesta með þeim hætti að upplýsingaskyldu hafi verið sinnt með því að færa núll í viðeigandi reiti.
Ef skilað er röngum eða ófullnægjandi upplýsingum til Skattsins, eða ef þær eru á annan hátt ekki samkvæmt skilalýsingu, skal tilkynningarskylda fjármálastofnunin eftir atvikum greiða þann kostnað sem af því kann að hljótast.
Upplýsingunum skal skilað rafrænt samkvæmt lýsingu á vef Skattsins á slóðinni: https://www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/fatca/.
Allar fyrirspurnir um ofangreind gagnaskil skal senda á netfangið: [email protected].
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 92., 93. og 94. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 18. nóvember 2024.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
|