1. gr.
Akstursþjónusta fyrir fatlað fólk er gjaldfrjáls frá kl. 8-17 alla virka daga í þéttbýliskjörnum Múlaþings.
2. gr.
Varðandi akstur sem er samþykktur á grundvelli 4. mgr. 7. gr. reglna Múlaþings um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk, nr. 50/2022, er greitt á eftirfarandi hátt:
Í dreifbýli er gjald fyrir hverja ferð kr. 322. Að hámarki er greitt fyrir 10 ferðir á viku.
Varðandi sérstaka samninga sem félagsþjónustan gerir vegna ferðaþjónustu við einstaklinga er tekið mið af útreikningum FÍB, https://www.fib.is/is/billinn/rekstrarkostnadur samkvæmt þeirra viðmiðunum eru greiddar kr. 85,87 á hvern ekinn km (flokkur A, B, C, D og E 1.lið).
3. gr.
Gjaldskrá þessi sem var samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 14. desember 2022 er sett með stoð í 29. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og öðlast þegar gildi.
Múlaþingi, 20. desember 2022.
Björn Ingimarsson sveitarstjóri.
|