Með vísan til 124. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, tilkynnir ráðuneytið að það hefur í dag staðfest sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps, í umdæmi sýslumannsins á Austurlandi, í eitt sveitarfélag. Heiti hins sameinaða sveitarfélags verður Fjarðabyggð.
Kjósa skal níu fulltrúa í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags við almennar sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 26. maí 2018. Nýkjörin sveitarstjórn tekur við stjórn hins sameinaða sveitarfélags 10. júní 2018 og á sama tíma tekur sameiningin gildi.
Samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar, nr. 567/2013, með síðari breytingum, mun gilda fyrir hið nýja sveitarfélag þar til því hefur verið sett ný samþykkt.
Íbúar beggja sveitarfélaganna skulu vera þegnar hins sameinaða sveitarfélags. Hið sameinaða sveitarfélag skal taka yfir allt það land sem nú tilheyrir sveitarfélögunum tveimur. Eignir, skuldir, réttindi og skyldur sem tilheyra sveitarfélögunum skulu falla til hins sameinaða sveitarfélags. Skjöl og bókhaldsgögn beggja sveitarfélaga skulu afhent hinu sameinaða sveitarfélagi til varðveislu.
Sveitarstjórnir sveitarfélaganna tveggja kjósa sameiginlega þrjá fulltrúa í yfirkjörstjórn og þrjá til vara í stað yfirkjörstjórna þeirra sem kosnar voru í upphafi yfirstandandi kjörtímabils skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 11. apríl 2018.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
|