Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1458/2024

Nr. 1458/2024 26. nóvember 2024

REGLUR
um aðlögun á grunnfjárhæðum í evrum fyrir starfsábyrgðartryggingu vátryggingamiðlara.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um vátryggingamiðlara skv. lögum nr. 62/2019 um dreifingu vátrygginga.

 

2. gr.

Vátryggingafjárhæðir starfsábyrgðartrygginga.

Vátryggingamiðlarar skulu við töku starfsábyrgðartrygginga skv. 2. mgr. 12. gr. laga nr. 62/2019 um dreif­ingu vátrygginga hafa starfsábyrgðartryggingu sem nær yfir allt Evrópska efna­hagssvæðið eða aðra sam­bæri­lega tryggingu vegna bótaábyrgðar sem leiðir af gáleysi í starfi, fyrir a.m.k. að jafnvirði 1.564.610 evra í ís­lenskum krónum vegna hvers tjónsatviks og samtals að jafnvirði 2.315.610 evra í íslenskum krónum á ári vegna allra tjónsatvika, nema slík trygging eða sambæri­leg ábyrgðar­yfirlýsing sé þegar veitt af vá­trygg­inga­félagi, endurtryggingafélagi eða öðru félagi sem vátrygginga- eða endurtrygginga­miðlarinn starfar fyrir, eða sem vátrygginga- eða endur­trygg­inga­miðlarinn hefur umboð til að starfa fyrir, eða ef slíkt félag hefur tekið fulla ábyrgð á gerðum miðlarans.

 

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1935 frá 13. maí 2019 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/97 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir aðlögun á grunnfjárhæðum í evrum fyrir starfsábyrgðar­tryggingu og fyrir fjárhagslega getu vátryggingamiðlara og endurtryggingamiðlara, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndar­innar nr. 157/2020 frá 23. október 2020. Reglugerðin er birt í EES-við­bæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 55 frá 26. ágúst 2021, bls. 212-213.

Með reglum þessum öðlast einnig gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/896 frá 5. desember 2023 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/97 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir aðlögun á grunnfjárhæðum í evrum vegna starfs­ábyrgðartryggingar og vegna fjárhagslegrar getu vátryggingamiðlara, endurtryggingamiðlara og vátryggingamiðlara í hliðar­starfsemi, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndar­innar nr. 125/2024 frá 12. júní 2024. Reglugerðin er birt í EES-við­bæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 65 frá 29. ágúst 2024, bls. 300-301.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 5. mgr. 12. gr. laga nr. 62/2019 um dreifingu vátrygginga, öðlast þegar gildi. Á sama tíma falla úr gildi reglur nr. 775/2022 um aðlögun á grunn­fjárhæðum í evrum fyrir starfsábyrgðartryggingu vátryggingamiðlara.

 

Seðlabanka Íslands, 26. nóvember 2024.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 10. desember 2024