Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 216/2024

Nr. 216/2024 22. febrúar 2024

REGLUR
um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda.

1. gr.

Gildissvið og markmið.

Reglur þessar gilda um samninga um fasteignalán sem lánveitendur gera í atvinnuskyni við neyt­endur, sbr. 2. gr. laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda, með þeim takmörkunum sem greinir í 3. gr. sömu laga. Reglurnar gilda ekki um samninga um fasteignalán vegna endur­fjármögn­unar sökum greiðsluerfiðleika neytenda, sem kann að hækka höfuðstól láns.

Markmið reglna þessara er að varðveita fjármálastöðugleika og treysta viðnámsþrótt lánveitenda og neytenda gagnvart ójafnvægi á húsnæðismarkaði.

 

2. gr.

Skilgreiningar.

Í reglum þessum merkir:

  1. Fjármögnun kaupa á fyrstu fasteign: Veiting fasteignaláns til neytanda sem ekki hefur áður verið þinglýstur eigandi íbúðarhúsnæðis.
  2. Greiðslubyrði fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda: Hlutfall greiðslubyrðar neytanda af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum, lýst sem hundraðshluta og reiknað út í samræmi við ákvæði 27. gr. laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda, og reglur þessar.
  3. Greiðsluerfiðleikar: Með greiðsluerfiðleikum er í reglum þessum átt við greiðsluerfiðleika eins og þeir eru skilgreindir í lögum nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda.
  4. Ráðstöfunartekjur: Með ráðstöfunartekjum er í reglum þessum átt við ráðstöfunartekjur eins og þær eru skilgreindar í lögum nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda, og er almennt miðað við, við gerð lánshæfis- og greiðslumats.
  5. Lánveitandi: Með lánveitanda er í reglum þessum átt við lánveitanda eins og hann er skil­greindur í lögum nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda.

Hugtökin fasteign og fasteignalán ná í reglum þessum einungis til lánveitinga vegna íbúðar­húsnæðis, sbr. a-lið 4. tölul. 4. gr. laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda.

 

3. gr.

Hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda.

Hámark mánaðarlegrar greiðslubyrðar fasteignalána skal vera 35% af mánaðarlegum ráðstöfunar­tekjum neytanda þegar fasteignalán er veitt.

Hámarkið skal vera 40% þegar um er að ræða fjármögnun kaupa á fyrstu fasteign. Ef aðeins hluti eigenda hefur ekki áður verið þinglýstur eigandi íbúðarhúsnæðis skal hámarkið ákvarðast með eftirfarandi hætti:

þar sem n er fjöldi eigenda sem ekki hafa áður verið þinglýstir eigendur íbúðarhúsnæðis og m er heildar­fjöldi eigenda íbúðarhúsnæðisins.

 

4. gr.

Viðmið við útreikning hámarks greiðslubyrðar
fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda.

Við útreikning hámarks greiðslubyrðar fasteignalána skv. 3. gr. er lánveitanda heimilt að miða við lán með jöfnum greiðslum og lánstíma að hámarki 40 ár fyrir óverðtryggð fasteignalán og að hámarki 25 ár fyrir verðtryggð lán, óháð greiðslufyrirkomulagi og lánstíma samkvæmt hlutað­eigandi samningi um fasteignalán.

Við útreikning hámarks greiðslubyrðar fasteignalána skv. 3. gr. skal að lágmarki miða við samn­ingsvexti viðkomandi láns eða lána, þó ekki lægri en 5,5% vexti af óverðtryggðum lánum og 3% vexti af verðtryggðum lánum.

 

5. gr.

Undanþága frá hámarki greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda.

Lánveitanda er heimilt að veita 5% af heildarfjárhæð veittra fasteignalána á hverjum ársfjórðungi til neytenda með greiðslubyrði fasteignalána umfram hámark skv. 3. gr. reglna þessara.

 

6. gr.

Gagnaskil.

Lánveitandi skal senda Seðlabanka Íslands skýrslu til að unnt sé að sannreyna að kröfur sam­kvæmt reglum þessum séu uppfylltar. Skýrsluna skal senda á því formi og með þeirri tíðni sem Seðla­bankinn ákveður, sbr. 2. mgr. 56. gr. laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda, og 1. mgr. 9. gr. laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.

 

7. gr.

Viðurlög.

Brot á reglum þessum geta varðað stjórnvaldssektum, sbr. 57. gr. laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda.

 

8. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 27. gr. laga nr. 118/2016 um fasteignalán til neytenda og hafa verið samþykktar af fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands, öðlast þegar gildi og gilda um samninga um fasteignalán sem gerðir eru eftir gildistöku þeirra. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 701/2022 um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda.

 

Ákvæði til bráðabirgða.

Hámark greiðslubyrðar fasteignalána skv. 3. gr. skal vera 40% í tilviki neytenda sem áttu fasteign í Grindavík 10. nóvember 2023, vegna kaupa á næstu fasteign. Hafi aðeins hluti eigenda verið eigandi íbúðarhúsnæðis í Grindavík skal hámarkið ákvarðast í samræmi við 2. málsl. 2. mgr. 3. gr.

Bráðabirgðaákvæði þetta fellur úr gildi 1. mars 2027.

 

Seðlabanka Íslands, 22. febrúar 2024.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri. 
Haukur C. Benediktsson
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 22. febrúar 2024