FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, og laga um Stjórnarráð Íslands, skiptist Stjórnarráð Íslands í ráðuneyti sem hér segir:
- forsætisráðuneyti,
- atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti,
- dómsmálaráðuneyti,
- fjármála- og efnahagsráðuneyti,
- mennta- og menningarmálaráðuneyti,
- samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti,
- umhverfis- og auðlindaráðuneyti,
- utanríkisráðuneyti,
- velferðarráðuneyti.
Úrskurður þessi öðlast gildi 1. maí 2017. Frá sama tíma falla úr gildi ákvæði eldri forsetaúrskurðar nr. 99 frá 30. ágúst 2012 um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.
Gjört í Reykjavík, 7. apríl 2017.
Guðni Th. Jóhannesson. (L. S.)
Bjarni Benediktsson.
|