1. gr.
Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, v-liður, sem verður svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/980 frá 16. maí 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/799 að því er varðar bráðabirgðasnjallökurita og notkun hans á kerfi fyrir sannvottun leiðsöguboða í opinni þjónustu Galíleó og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/1228, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 35/2024, 2. febrúar 2024, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25 frá 21. mars 2024, bls. 587-594.
2. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 54. og 69. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 30. maí 2024.
F. h. r. Árni Freyr Stefánsson.
|