1. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. ágúst 2022“ í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. október 2022.
2. gr.
Í stað dagsetningarinnar „31. ágúst 2022“ í 9. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. október 2022.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, sbr. einnig 29. gr. með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 1. september 2022.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
|