Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1649/2021

Nr. 1649/2021 29. desember 2021

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað „806.700 kr.“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 843.804 kr.
  2. Í stað „647.376 kr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 683.628 kr.

 

2. gr.

2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ef heimilismaður er á aldrinum 18-25 ára og í námi eða starfsþjálfun skulu aðrir heimilismenn þó ekki teljast hafa fjárhagslegt hagræði af sambýli eða samlögum við hann.

 

3. gr.

Í stað „3.141.270 kr.“ í 11. gr. reglugerðarinnar kemur: 3.317.181 kr.

 

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað „333.258 kr.“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 351.920 kr.
  2. Í stað „265.044 kr.“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 279.886 kr.

 

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 6. mgr. 9. gr., sbr. 14. gr., laga nr. 99/2007, um félags­lega aðstoð, með síðari breytingum, sbr. einnig 70. gr. laga nr. 100/2007, um almanna­tryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 708/2021, um breytingu á reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 29. desember 2021.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson
félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2021