Fjármálastofnanir sem tilkynningarskyldar eru skv. 1. og 2. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, um framkvæmd áreiðanleikakannana vegna upplýsingaöflunar á sviði skattamála, skulu skila upplýsingum vegna ársins 2024 um CRS tilkynningarskylda reikninga til Skattsins eigi síðar en 20. janúar 2025. Tilkynningar- og upplýsingaskyldan tekur til tilkynningarskyldra reikninga, (innlánsreikninga, vörslureikninga, vátryggingarsamninga að tilteknu peningavirði og lífeyrissamninga auk eignarréttinda og skuldareignar í tilviki fjárfestingaraðila).
- Þegar áreiðanleikakönnun skv. III. kafla reglugerðarinnar leiðir í ljós að reikningshafi, þ.e. einstaklingur eða lögaðili, sé tilkynningarskyldur aðili skal skila m.a. eftirfarandi upplýsingum:
- Nafni, heimilisfangi og erlendri skattkennitölu sérhvers tilgreinds erlends reikningshafa (einstaklinga og lögaðila) sem á eða fer með tilkynningarskyldan reikning. Ef reikningshafi er lögaðili sem ekki telst vera erlendur en áreiðanleikakönnun skv. reglugerðinni leiðir í ljós að lögaðilinn hefur einn eða fleiri ráðandi aðila (e. controlling person), sem teljast erlendir aðilar, skal skila upplýsingum um nafn, heimilisfang og erlenda skattkennitölu þeirra, sbr. 40. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015.
- Reikningsnúmeri eða ígildi þess.
- Reikningsstöðu í árslok 2024. Hafi reikningi verið lokað á árinu 2024 skal tilkynna reikningsstöðu eða virði við lokun.
- Mynt allra fjárhæða.
- Til viðbótar við framangreindar upplýsingar skal einnig skila eftirfarandi upplýsingum:
- Sé um innlánsreikninga að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra eða tekjufærðra vaxta á árinu 2024.
- Sé um vörslureikning að ræða skal skila upplýsingum um heildarfjárhæð greiddra vaxta, arðs og annarra tekna, þ.m.t. sölu- og gengishagnað, sem myndast hefur vegna ávöxtunar þeirra eigna sem viðkomandi vörslureikningur hefur að geyma og hafa verið færðar sem tekjur inn á reikninginn (eða með tilliti til reikningsins) á árinu 2024.
- Sé reikningshafi óvirkur lögaðili sem ekki er fjármálastofnun, sbr. 42. tölul. 2. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, skal upplýsa um nöfn, heimilisföng og skattkennitölur tilkynningarskyldra stjórnandi aðila.
- Tilkynningarskyldar fjármálastofnanir skulu ætíð skila skýrslum í samræmi við skilalýsingu til Skattsins, þrátt fyrir að hafa enga reikninga haft í eigu eða umráðum tilkynningarskyldra aðila á almanaksárinu. Eftir atvikum skal færa núll í viðeigandi reiti.
Ef skilað er röngum eða ófullnægjandi upplýsingum til Skattsins kann slík háttsemi að varða sektum.
Upplýsingunum skal skilað rafrænt samkvæmt lýsingu á vef Skattsins á slóðinni: https://www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/crs/.
Allar fyrirspurnir um ofangreind gagnaskil skal senda á netfangið: [email protected].
Auglýsing þessi er birt skv. 92., 93. og 94. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 1240/2015, og öðlast þegar gildi.
Reykjavík, 18. nóvember 2024.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
|