Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1419/2023

Nr. 1419/2023 18. desember 2023

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 905/2021, um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.

1. gr.

Í stað „22.058 kr.“ í 4. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 23.293 kr.

 

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað „360.000 kr.“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: 500.000 kr.
  2. Í stað „720.000 kr.“ í 2. málsl. 3. mgr. kemur: 1.000.000 kr.

 

3. gr.

Í stað „1.440.000 kr.“ í 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: 2.000.000 kr.

 

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðinu „aukabúnaðar“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: en að hámarki 66% þegar um er að ræða sérútbúna hreina rafbíla.
  2. Í stað „6.000.000 kr.“ í 2. málsl. 5. mgr. kemur: 7.400.000 kr.
  3. Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þegar um er að ræða sérútbúna hreina rafbíla getur fjárhæð styrks þó numið allt að 8.140.000 kr.

 

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað „1.440.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 2.000.000 kr.
  2. Í stað „6.000.000 kr.“ í 2. mgr. kemur: 7.400.000 kr.
  3. Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þegar um er að ræða sérútbúna hreina rafbíla getur fjárhæð styrks þó numið allt að 8.140.000 kr.

 

6. gr.

Á eftir 14. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, svohljóðandi:

Fjárhæðir uppbóta og styrkja samkvæmt reglugerð þessari skulu taka breytingum í samræmi við breytingar á greiðslum almannatrygginga, sbr. 62. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, sbr. einnig 1. mgr. 14. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007.

 

7. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 14. gr., sbr. 10. gr. laga nr. 99/2007, um félags­lega aðstoð, sbr. 63. gr. laga um almannatryggingar, öðlast gildi 1. janúar 2024.

 

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 18. desember 2023.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 20. desember 2023