Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Leiðréttingar:

Leiðrétt 29. janúar 2024:
HTML-texti: Ábending. Í 1. tl. 1. gr. standast fjárhæðir ekki á við viðeigandi texta. Þetta er rétt í PDF-skjali.


Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1605/2023

Nr. 1605/2023 12. desember 2023

GJALDSKRÁ
Geislavarna ríkisins.

1. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna lögbundins eftirlits með geislatækjum og geisla­virkum efnum í samræmi við 5. og 17. gr. laga um geislavarnir, nr. 44/2002. Gjaldið skal vera sem hér segir:

1. Röntgentæki kr.   
  a) Röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – myndataka 93.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir  
    sama ábyrgðarmanni  
  b) Röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – skyggning 33.500
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir 120.000
    sama ábyrgðarmanni  
  c) Tölvusneiðmyndatæki og O-bogar 44.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir 160.500
    sama ábyrgðarmanni  
  d) Tannröntgentæki 93.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir 46.500
    sama ábyrgðarmanni  
  e) Tölvusneiðmyndatæki við tannlækningar 20.000
  f) Iðnaðarröntgentæki (opin aðstaða) 125.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir 78.500
    sama ábyrgðarmanni  
  g) Dýralækningaröntgentæki 40.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir 72.500
    sama ábyrgðarmanni 23.500
  h) Skermuð öryggisröntgentæki 53.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir  
    sama ábyrgðarmanni:  
    fimm eða færri tæki 23.500
    fyrir hvert tæki umfram fimm 17.000
  i) Skermuð röntgentæki til efnarannsókna og gæðaeftirlits með iðnaði 46.500
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og með sama ábyrgðarmann 17.000
       
2. Geislalækningatæki, línuhraðlar og hringhraðlar 121.500
  Fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild 41.500
     
3. Geislavirk efni, opnar geislalindir  
  Rannsóknastofa í flokki A eða sambærileg starfsemi 134.500
  Rannsóknastofa í flokki B eða sambærileg starfsemi 91.500
  Rannsóknastofa í flokki C eða sambærileg starfsemi 58.500
     
4. Geislavirk efni, lokaðar geislalindir  
  a) Nifteindalindir eða hágeislavirkar lindir (sbr. viðauka 1 í reglugerð  
    nr. 1298/2015 og ráðleggingar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar) 72.500
    i)     fyrir hverja nifteindalind/hágeislavirka lind til viðbótar hjá sama aðila 29.000
  b) Kvörðunarlindir, allt að tíu á sama vinnustað og sem  
    tilheyra sama ábyrgðarmanni 68.000
    i) fyrir hverja kvörðunarlind umfram tíu lindir 7.000
  c) Aðrar lokaðar geislalindir 68.000
    fyrir hverja eins lind til viðbótar:  
    i) fimm eða færri til viðbótar á sama stað með sama ábyrgðarmann 20.000
    ii) fyrir hverja lind umfram fimm á sama stað með sama ábyrgðarmann 17.000
5. Eftirlit með geislaálagi starfsfólks  
  Almennar TLD mælingar, fyrir hvert mælitímabil 3.500
  Fyrir hvern TLD mæli sem týnist eða skemmist 10.000
  Sérhæfðar TLD mælingar, fyrir hvert mælitímabil 7.000

 

Heimilt er að lækka eftirlitsgjald um 50% þegar ekki þarf að fara á staðinn heldur nægir að fara yfir gögn og mælingar. Það á við um staði þar sem ekki voru gerðar athugasemdir við síðasta eftirlit og starfsemin er óbreytt.

 

2. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna mats á umsóknum um leyfi í samræmi við 7. og 9. gr. laga um geislavarnir. Gjaldið skal vera sem hér segir:

1. Vegna geislatækja í læknisfræði kr.   
  a) Tannröntgentæki 15.500
  b) Röntgentæki til dýralækninga 23.000
  c) Röntgentæki til sjúkdómsgreininga 23.000
  d) Geislalækningatæki og línuhraðlar 38.500
       
2. Vegna geislatækja í iðnaði og við öryggisgæslu  
  a) Skermuð röntgentæki 15.500
  b) Háorkuröntgentæki 23.000
       
3. Vegna lokaðra geislalinda  
  a) Innflutningur og/eða geymsla 23.000
  b) Notkun annarra geislalinda en í c-lið 23.000
  c) Notkun nifteindalinda eða hágeislavirkra linda (sbr. viðauka 1 í reglugerð nr. 1298/2015 og ráðleggingar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar) 39.000
       
4. Vegna opinna geislalinda  
  a) Rannsóknastofa í flokki C eða sambærileg starfsemi 23.000
  b) Rannsóknastofa í flokki B eða sambærileg starfsemi 31.000
  c) Rannsóknastofa í flokki A eða sambærileg starfsemi 38.500
  d) Framleiðsla geislavirkra efna 310.000
  e) Innflutningur og/eða geymsla 23.000
       
5. Mat á skermun, nýr staður eða breytingar 23.000
     
6. Vegna endurútgáfu leyfa (nýr ábyrgðarmaður eða kennitala leyfishafa)  
  a) Fyrir allt að þrjú tæki/lindir 15.500
  b) Fyrir hvert tæki til viðbótar 4.000
       
7. Vegna notkunar leysa og leysibenda  
  a) Tónleikar og ýmsar sýningar, einn viðburður, almenn afgreiðsla 33.000
  b) Tónleikar og ýmsar sýningar, hraðafgreiðsla (innan fjögurra virkra daga) 65.500
  c) Tónleikar og ýmsar sýningar, fleiri en einn viðburður, almenn afgreiðsla 65.500
  d) Önnur notkun 15.500
       
8. Geislavarnir ríkisins innheimta gjald sem nemur 21.500 kr./klst. vegna mats á umsóknum um leyfi í sam­ræmi við 7. og 9. gr. laga um geislavarnir vegna annars en þess sem talið er upp hér að ofan.  

 

3. gr.

Geislavarnir ríkisins annast innheimtu leyfis- og eftirlitsgjalda. Leyfis- og eftirlitsgjöld falla í gjald­daga við útgáfu reiknings með eindaga 30 dögum síðar.

 

4. gr.

Vegna endurtekinnar eftirfylgni eftirlits vegna þess að ekki er orðið við kröfum um úrbætur innan tiltekins tíma skal innheimt gjald skv. 5. gr. Þurfi Geislavarnir ríkisins að endurtaka eftirlit vegna þess að ekki hefur verið orðið við kröfum um úrbætur sem gerðar voru við reglubundið eftirlit þrátt fyrir endurtekna eftirfylgni skal greiða fyrir það líkt og um reglubundið eftirlit væri að ræða.

Eigandi eða ábyrgðarmaður getur óskað eftir aukaeftirliti og skal þá greiða fyrir það sem um reglubundið eftirlit væri að ræða.

 

5. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimta gjald á hverja klukkustund fyrir veitta þjónustu og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða hún tekur að sér samkvæmt lögum og reglugerðum:

      kr.   
  a) Sérfræðingur 24.000
  b) Fulltrúi 18.500

 

6. gr.

Eftirlits- og leyfisgjöld eru tryggð með lögveðsrétti í eftirlitsskyldum tækjum í tvö ár eftir gjald­daga.

 

7. gr.

Fyrir ýmsar mælingar sem Geislavarnir ríkisins framkvæma skal stofnunin innheimta gjald, að fjárhæð:

      kr.   
  a) Geislun eða geislavirkni 38.500
  b) Rafsegulsvið, útfjólublá geislun og geislun frá leysum, fyrir allt að  
    átta mælingar á sama stað 77.500
  c) Leysibendar, allt að fjórar mælingar 15.500
  d) Leysibendar, hver mæling umfram fjórar mælingar 4.000
  e) Stroksýni, sem ekki er hluti af eftirliti, ef farið er á staðinn 48.000
  f) Stroksýni, sem ekki er hluti af eftirliti, ekki farið á staðinn 24.000
  g) Fyrir hvert auka stroksýni 6.000

Fyrir hverja yfirlýsingu um geislavirkni sem stofnunin lætur í té skal innheimta 6.000 kr.

Ef mælingar á rafsegulsviði eru í vinnuumhverfi, þ.e. á svæði þar sem starfsfólk getur verið að störfum, skal stofnunin meta umfang hverrar mælingar fyrir sig og innheimta tímagjald fyrir veitta þjónustu skv. 5. gr.

 

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 19. og 21. gr. laga um geislavarnir, nr. 44/2002, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá Geislavarna ríkisins nr. 1722/2022.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 12. desember 2023.

 

Willum Þór Þórsson.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. desember 2023