I. KAFLI
Um skipan bæjarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.
1. gr.
Skipan bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss er skipuð sjö fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna.
2. gr.
Sjálfstætt stjórnvald.
Sveitarfélagið Ölfus er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni bæjarstjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.
3. gr.
Verkefni sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið Ölfus annast þau verkefni sem því eru falin í lögum, sbr. og leiðbeinandi auglýsingu frá ráðuneytinu.
Sveitarfélagið Ölfus vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.
Sveitarfélaginu Ölfusi er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þess, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.
II. KAFLI
Um bæjarstjórn.
4. gr.
Hlutverk bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, annarra laga og samþykkt þessari.
Bæjarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.
5. gr.
Verkefni bæjarstjórnar.
Meðal verkefna bæjarstjórnar er að:
- Sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélagsins, sbr. 8. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
- Setja bæjarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins, ráða bæjarstjóra sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
- Móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins, deilda og stofnana, setja starfsemi sveitarfélagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
- Fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
- Bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.
- Hafa eftirlit með framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
- Veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Setja sveitarfélaginu málstefnu skv. 130. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú ár á eftir um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum sveitarfélagsins, sbr. 130. gr. a. sveitarstjórnarlaga.
6. gr.
Ný bæjarstjórn tekur til starfa.
Nýkjörin bæjarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur fráfarandi bæjarstjórn umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosningar til sveitarstjórna. Nýkjörin bæjarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarðana um málefni bæjarstjórnar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.
Sá fulltrúi í nýkjörinni bæjarstjórn sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.
Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.
7. gr.
Kjör forseta bæjarstjórnar og varaforseta.
Á fyrsta fundi kýs bæjarstjórn forseta og einn varaforseta. Skulu þeir kjörnir til eins árs í senn.
Njóti forseti eða varaforseti ekki lengur stuðnings bæjarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef forseti eða varaforseti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu forseta og varaforseta til ráðuneytis þegar að því loknu.
Sá telst rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meirihluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.
Þegar að lokinni kosningu forseta bæjarstjórnar skal kjósa varaforseta til að gegna störfum forseta í forföllum hans. Kosning varaforseta fer fram með sama hætti og forseta.
III. KAFLI
Fundir bæjarstjórnar og fundarsköp.
8. gr.
Fundir bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss heldur reglulega fundi bæjarstjórnar einu sinni í mánuði að jafnaði og fundardagar eru síðasti fimmtudagur hvers mánaðar kl. 16.30 að öðru jöfnu. Fundirnir eru haldnir í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Ölfuss.
Aukafundi skal halda þegar forseti bæjarstjórnar eða bæjarstjóri telja það nauðsynlegt eða ef þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess.
Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi bæjarstjórnar á undan.
Bæjarstjórn er heimilt að fella niður reglulega fundi bæjarstjórnar vegna sumarleyfis.
Auglýsa skal fundi sveitarstjórnar á vef þess með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara og tilgreina þar dagskrá fundar.
9. gr.
Boðun bæjarstjórnarfunda.
Bæjarstjóri boðar til fundar. Fundarboð skal berast bæjarfulltrúum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.
Heimilt er að senda fundarboð (dagskrá) rafrænt til bæjarfulltrúa, aðalmanna og varamanna, með tölvupósti og fundarboðið, dagskrá ásamt fylgigögnum, er þá aðgengilegt rafrænt í gegnum aðgang kjörinna fulltrúa inn á fundargátt bæjarfélagsins.
Heimilt er að boða fundi ráða og fastanefnda rafrænt með sama hætti og boðun funda bæjarstjórnar.
Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund. Fundarboð vegna aukafunda skal berast bæjarfulltrúum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund. Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að bæjarfulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind.
10. gr.
Dagskrá bæjarstjórnarfundar.
Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði.
Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:
- Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar forseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, svo og ráðningu bæjarstjóra og helstu stjórnenda sveitarfélagsins og endurskoðenda þess.
- Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum Sveitarfélagsins Ölfuss.
- Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
- Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri eða forseti ákveða að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.
Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega eða með rafrænum hætti a.m.k. 54 klukkustundum fyrir fund og í síðasta lagi kl. 16.00 á föstudegi vegna fundar sem halda skal á mánudegi.
11. gr.
Tilkynning til íbúa um fundi bæjarstjórnar.
Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórn ákvörðun um hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum bæjarfélagsins með tryggum hætti.
Íbúum sveitarfélagsins skal kynnt um fyrirhugaða fundi bæjarstjórnar ásamt dagskrá til dæmis með auglýsingu á vefsíðu Sveitarfélagsins Ölfuss, innan sömu tímafresta og við á um bæjarfulltrúa, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.
12. gr.
Opnir fundir bæjarstjórnar.
Fundir bæjarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Forseti bæjarstjórnar eða bæjarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.
Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélagsins séu viðstaddir.
13. gr.
Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.
Bæjarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur bæjarfulltrúa sé viðstaddur á fundi.
Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.
14. gr.
Fjarfundarbúnaður.
Bæjarfulltrúum og nefndarmönnum er heimilt að taka þátt í fundi bæjarstjórnar og nefnda og ráða á vegum sveitarfélagsins með fjarfundarbúnaði, sbr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga. Þegar aðili tekur þátt í fundi með rafrænum hætti skal hann annaðhvort vera staddur í sveitarfélaginu eða í erindagjörðum innan lands á vegum þess. Tryggja skal jafna möguleika allra fundarmanna til þátttöku á fundi og í atkvæðagreiðslu, óskerta möguleika þeirra til að fylgjast með því sem þar fer fram og öryggi samskipta milli fundarmanna. Að öðru leyti fer um framkvæmd fjarfunda samkvæmt leiðbeiningum frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.
15. gr.
Tvær umræður í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:
- Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
- Staðfestingu ársreiknings.
- Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meiri hluta þess.
- Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.
Þá skal bæjarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.
16. gr.
Fundarsköp og ritun fundargerða.
Um ritun fundargerða bæjarstjórnar skal farið eftir leiðbeiningum um ritun fundargerða bæjarstjórna, samkvæmt 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga. Fundargerðir bæjarstjórnar skulu vera aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins sem fyrst að afloknum fundi.
I. Fundarsköp:
- Fundarstjórn. Forseti bæjarstjórnar stjórnar umræðum á fundum bæjarstjórnar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Hann sér um að fundargerðir séu færðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta. Forseti bæjarstjórnar sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum bæjarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar.
- Vald forseta bæjarstjórnar. Skylt er bæjarfulltrúa að lúta valdi forseta í hvívetna varðandi það að gætt sé góðrar reglu. Ef bæjarfulltrúi ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal forseti víta hann. Ef bæjarfulltrúi er víttur tvisvar á sama fundi getur forseti bæjarstjórnar lagt til við bæjarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust. Ef bæjarfulltrúi hlýðnast ekki úrskurði forseta bæjarstjórnar eða almenn óregla kemur upp á fundi skal forseti bæjarstjórnar gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi. Ef áheyrandi á bæjarstjórnarfundi raskar fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal.
Leyfi forseta þarf til að taka myndir í fundarsal bæjarstjórnar.
- Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema bæjarstjórn eða forseti bæjarstjórnar ákveði að önnur röð skuli höfð. Forseti bæjarstjórnar getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa þau afbrigði.
- Málfrelsi bæjarstjóra. Bæjarstjóri skal að öllu jöfnu sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn.
- Málfrelsi. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar.
Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta bæjarstjórnar. Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða framkvæmdastjóra eða framsögumann svo og bæjarfulltrúa sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar. Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður forseti bæjarstjórnar í hvaða röð þeir tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti bæjarstjórnar leyfi annað.
- Ávarp ræðumanns. Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta bæjarstjórnar. Bæjarfulltrúi skal ávarpa einstaka bæjarfulltrúa með fullu nafni. Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða. Ekki má lesa prentað mál nema forseti bæjarstjórnar leyfi.
- Hve oft má tala. Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls í allt að tíu mínútur í fyrra skiptið og allt að fimm mínútur í seinna skiptið. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta bæjarstjórnar. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Forseti getur leyft bæjarfulltrúum að veita stutt andsvar við einstökum ræðum strax og þær hafa verið fluttar. Framkvæmdastjóri hefur óbundið málfrelsi.
- Ræðutími. Ef forseti telur umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða að umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Óski bæjarfulltrúi eftir lengri umræðu vegna einstaks máls sem er til umfjöllunar á fundinum, skal hlutaðeigandi beina beiðni þess efnis til forseta og skal ræðutími í fyrri umræðu þá lengdur í 15 mínútur og í 5 mínútur við seinni umræðu. Ekki má þó takmarka umræðu um mál meira en svo að hún standi skemur en í tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun og ársreikninga bæjarsjóðs og stofnana hans eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar um tímatakmörk ræðutíma.
- Tillögur og afgreiðsla. Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Forseti bæjarstjórnar ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp. Forseti bæjarstjórnar sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað.
- Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í bæjarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
- Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Bæjarfulltrúi greiðir atkvæði úr sæti sínu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar. Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð. Forseti bæjarstjórnar getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir.
- Kosningar. Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn, skv. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forseta bæjarstjórnar. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar. Bæjarstjórn ber að hafa í huga ákvæði 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga varðandi kynjahlutfall.
17. gr.
Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.
Um hæfi bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins til þátttöku í meðferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveitarstjórnarlögum. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að einum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður sveitarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis sveitarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.
Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber bæjarfulltrúa, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitarfélagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélagsins. Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.
18. gr.
Varamenn í bæjarstjórn.
Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast.
Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til bæjarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista í bæjarstjórn geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í bæjarstjórn í forföllum aðalmanns, í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum. Hér skal ávallt miðað við stöðu viðkomandi á þeim tíma er kjör til bæjarstjórnar fór fram.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 2. mgr. skal leggja fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.
IV. KAFLI
Réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.
19. gr.
Skyldur bæjarfulltrúa.
Bæjarfulltrúa ber skylda til að taka þátt í öllum bæjarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.
Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur forseti bæjarstjórnar heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan bæjarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.
Hverjum bæjarfulltrúa er skylt að inna af hendi störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnar.
Bæjarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
20. gr.
Réttur bæjarfulltrúa.
Bæjarfulltrúar eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.
Bæjarfulltrúi á rétt á að tekið verði á dagskrá bæjarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess.
Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá bæjarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.
Bæjarfulltrúar hafa málfrelsi á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum bæjarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar.
Vilji bæjarfulltrúi ekki una úrskurði forseta bæjarstjórnar um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til bæjarstjórnar sem sker úr án umræðna.
21. gr.
Aðgangur að gögnum.
Vegna starfa sinna í bæjarstjórn á sérhver bæjarfulltrúi rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í bæjarstjórn.
Bæjarfulltrúi skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.
Óski bæjarfulltrúi slíks aðgengis skal hann beina því til bæjarstjóra sem veitir honum afrit af gögnum, upplýsingum eða öðru aðgengi.
Séu gögn viðamikil eða undanþegin upplýsingarétti almennings hefur bæjarfulltrúi heimild til að kynna sér þau á skrifstofu sveitarfélagsins en hefur ekki heimild til að taka af þeim afrit eða fara með þau af skrifstofu sveitarfélagsins.
Varði málefni viðkvæma persónulega hagi einstaklings sem ekki er til umfjöllunar í bæjarstjórn er heimilt að neita um afhendingu gagna og upplýsinga.
22. gr.
Siðareglur og góðir starfshættir.
Bæjarfulltrúi skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem bæjarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
23. gr.
Lausn frá störfum.
Telji bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við bæjarstjórn að hún:
- létti af honum störfum eða
- veiti honum lausn úr bæjarstjórn um tiltekinn fyrir fram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.
Þegar bæjarfulltrúi flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má bæjarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr bæjarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en bæjarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir bæjarfulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi og getur ekki tekið aftur sæti í sveitarstjórn á kjörtímabilinu taki hann aftur búsetu í sveitarfélaginu.
Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn. Ef bæjarfulltrúi missir fjárforræði skal bæjarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
24. gr.
Boðun varamanna.
Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í bæjarstjórn skal boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur bæjarfulltrúi krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra bæjarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.
Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í bæjarstjórn á þeim fundi. Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari, eins fljótt og auðið er og tilkynna hvaða varamaður sitji fundinn í hans stað. Boðun varamanna skal vera í samræmi við 18. gr. þessarar samþykktar. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.
Þegar fyrirséð er að aðalmaður í bæjarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórn frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.
Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í bæjarstjórn skal varamaður hans taka sæti í bæjarstjórn frá og með næsta fundi.
25. gr.
Þóknun o.fl.
Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis bæjarfulltrúa og fundarstaðar bæjarstjórnar skal bæjarfulltrúi fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.
Bæjarfulltrúi má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.
26. gr.
Réttindi og skyldur varamanna.
Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa, eiga einnig við um varamenn þegar þeir taka sæti í bæjarstjórn.
V. KAFLI
Bæjarráð.
27. gr.
Kosning bæjarráðs.
Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kjósa þrjá aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn og varamenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga.
Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna fulltrúa í bæjarráði.
Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað.
28. gr.
Fundartími bæjarráðs.
Bæjarráð skal að jafnaði halda fund tvisvar sinnum í mánuði, að öllu jöfnu í 1. og 3. viku hvers mánaðar. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri sveitarfélagsins, formaður bæjarráðs eða a.m.k. 1/3 bæjarráðsmanna óska þess.
29. gr.
Boðun funda bæjarráðs.
Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu eða rafrænu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.
Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna bæjarstjóra um forföll og tilkynna hvaða varamaður sitji fundinn í hans stað. Boðun varamanna skal vera í samræmi við 18. gr. þessarar samþykktar.
30. gr.
Stjórnun bæjarráðs.
Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs .
Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmanna óskar þess.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs annast fundarritun. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar.
Skylt er starfsmönnum sveitarfélagsins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað. Heimilt er að boða aðra á fundi bæjarráðs til viðræðna um tiltekin mál.
Bæjarráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum.
31. gr.
Áheyrnarfulltrúar í bæjarráði.
Framboðslisti sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki í bæjarráði má tilnefna bæjarfulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt.
Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi í bæjarráði skulu vera aðalmenn í bæjarstjórn, sbr. 3. mgr. 50. gr. sveitarstjórnarlaga.
32. gr.
Verkefni bæjarráðs.
Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn sveitarfélagsins að því leyti sem þessi mál eru ekki öðrum falin.
Bæjarráð hefur eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess, semur drög að fjárhagsáætlun og viðaukum við hana og leggur þau fyrir bæjarstjórn.
Þá sér bæjarráð um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir bæjarstjórn til meðferðar og afgreiðslu. Þá fer bæjarráð með yfirumsjón starfsmannamála, kjaramála og skipar fulltrúa í kjaranefndir.
Bæjarráð hefur umsjón með verkefnum sem tengjast miðlægri þjónustu, atvinnu, frumkvöðlastarfsemi, samgöngumálum, menningarmálum og markaðs- og ferðamálum. Undir ráðið heyra einnig jafnréttismál, skjalamál og persónuverndarmál. Þá fer ráðið með nýtingu þess húsnæðis sem undir það heyrir auk annarra verkefna sem bæjarstjórn felur ráðinu.
Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé eigi ágreiningur innan ráðsins eða við bæjarstjóra um ákvörðunina.
Meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella, enda sé eigi ágreiningur innan ráðsins eða við bæjarstjóra um afgreiðslu máls.
33. gr.
Heimild bæjarráðs til fullnaðarákvörðunar.
Bæjarstjórn getur falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu einstakra mála nema lög mæli á annan veg. Vald til fullnaðarafgreiðslu máls getur aldrei falið í sér vald til töku ákvörðunar sem gengur gegn fjárhagsáætlun eða öðrum almennum og bindandi reglum eða áætlunum sem bæjarstjórn hefur sett.
Bæjarráð hefur heimild til fullnaðarákvörðunar um lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins og sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess, sbr. 5. og 6. tl. 1. mgr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga, enda sé ekki um verulega fjárhagslega hagsmuni að ræða og ákvörðun rúmast innan fjárhagsáætlunar til eins árs og áætlunar til fjögurra ára, eigi hún við.
Fullnaðarákvarðanir sem teknar hafa verið sæta ekki eiginlegu málskoti innan stjórnsýslu sveitarfélagsins, heldur getur aðili máls átt rétt á endurupptöku ákvörðunar, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Ef óskað er endurupptöku máls sem bæjarráð, nefnd eða starfsmaður hefur afgreitt, sbr. 8. mgr. 32. gr. og 54. gr. samþykktar þessarar skal bæjarstjórn láta leggja lögfræðilegt mat á rétt beiðandans til endurupptöku málsins áður en beiðnin er lögð fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.
VI. KAFLI
Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en bæjarráð.
34. gr.
Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.
Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir bæjarstjórnar.
Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og bæjarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.
Að loknum bæjarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin bæjarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri bæjarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.
35. gr.
Kosning og kjörgengi.
Kosningar í fastanefndir bæjarstjórnar, nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitarstjórnarlaga.
Bæjarstjórn er heimilt að ákveða að nefnd fyrir hluta sveitarfélagsins sé kosin af íbúum viðkomandi hluta þess að uppfylltum öðrum skilyrðum 38. gr. sveitarstjórnarlaga.
Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skal bæjarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.
Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Bæjarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu.
36. gr.
Erindisbréf.
Bæjarstjórn staðfestir erindisbréf fyrir nefndir, ráð og stjórnir þar sem kveðið er á um hlutverk og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir bæjarstjórnar.
37. gr.
Valdsvið nefnda og framsal bæjarstjórnar til fastanefnda á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð er bæjarstjórn heimilt að fela kjörnum nefndum sem taldar eru upp í 48. gr. þessarar samþykktar að afgreiða, án staðfestingar bæjarstjórnar, mál á verksviði þeirra ef:
- lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því,
- þau varða ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun, og
- þau víkja ekki frá stefnu bæjarstjórnar í veigamiklum málum.
Framsalsheimildir nefnda til fullnaðarafgreiðslu skulu koma fram í erindisbréfum nefnda og í viðauka með samþykkt þessari.
38. gr.
Afgreiðsla á fundargerðum.
Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir bæjarstjórn til kynningar eða afgreiðslu og staðfestingar. Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir bæjarráð.
39. gr.
Fundir nefnda og ályktunarhæfi.
Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum, með þátttöku kjörinna fulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki.
Nefndum er skylt að verða við ósk nefndarmanns um opinn fund, að öllu leyti eða hluta, ef tillaga um slíkt er samþykkt mótatkvæðalaust á næsta nefndarfundi á undan, svo fremi sem lög eða eðli máls hamla því ekki. Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.
40. gr.
Fundarstjórn og fundargerðir.
Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.
Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu skrá fundargerðir með rafrænum hætti í fundarkerfi sveitarfélagsins. Nefnd getur ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 16. gr. samþykktar þessarar.
41. gr.
Varamenn.
Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.
Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.
Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til bæjarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd bæjarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.
42. gr.
Boðun varamanna.
Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.
Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar bæjarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.
Ákvæði samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.
43. gr.
Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.
Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í bæjarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndarstörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við bæjarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.
Bæjarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan bæjarstjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Enn fremur getur bæjarfulltrúi krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Bæjarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nema enginn ágreiningur sé innan bæjarstjórnar um breytingarnar.
Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.
44. gr.
Áheyrnarfulltrúar.
Heimilt er framboðslista sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki í nefnd sem kosið er til skv. b-lið 48. gr. að tilnefna áheyrnarfulltrúa og varaáheyrnarfulltrúa til setu í viðkomandi nefnd með málfrelsi og tillögurétt. Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi nefnd. Ekki er greidd þóknun fyrir setu áheyrnarfulltrúa á nefndarfundum.
45. gr.
Þóknun.
Bæjarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati bæjarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur.
46. gr.
Önnur réttindi og skyldur.
Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.
Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.
47. gr.
Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.
Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.
Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem bæjarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum bæjarstjórnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.
48. gr.
Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.
Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir auk formanna og varaformanna ráða skv. A og B-lið:
- Til eins árs.
- Bæjarráð. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kjósa þrjá aðalmenn og þrjá til vara í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð. Kveðið er á um verkefni bæjarráðs í 32. gr. samþykktar þessarar.
- Til fjögurra ára. Bæjarstjórn kýs í eftirfarandi ráð og nefndir sem kosin eru á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabilið hið sama og bæjarstjórnar. Bæjarstjórn kýs nefndunum formann og varaformann:
- Yfirkjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Yfirkjörstjórn fer með umsjón með kosningum í sveitarfélaginu og er hlutverki hennar nánar lýst í kosningalögum nr. 112/2021. Þá getur bæjarstjórn kosið þrjá menn og þrjá til vara í undirkjörstjórn. Heimilt er að kjósa hana síðar.
- Fjölskyldu- og fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara. Nefndin starfar skv. erindisbréfi bæjarstjórnar. Nefndin annast þau verkefni sem bæjarstjórn felur henni á sviði fræðslu- og félagsþjónustu ásamt því að fara með verkefni á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 sem og verkefni á grundvelli laga um málefni aldraðra nr. 125/1999. Nefndin fer með verkefni skólanefnda, sbr. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008, málefni tónlistarskóla, sbr. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 og verkefni leikskólastjórnar skv. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og málefni frístundaheimila skv. 33. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. Nefndin ber einnig ábyrgð á framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna innan sveitarfélagsins. Nefndin annast einnig þau störf sem bæjarstjórn felur nefndinni á sviði fjölskyldumála og velferðar ásamt því að fara með verkefni félagsmálanefndar skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Fjölskyldu- og fræðslunefnd fer með verkefni yfirstjórnar barnaverndarþjónustu skv. 12. gr., sbr. 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og fjölmenningarmál.
- Íþrótta- og tómstundanefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara. Nefndin starfar skv. erindisbréfi bæjarstjórnar. Meðal verkefna hennar eru frístundastarf barna og ungmenna, rekstur félagsmiðstöðvar, rekstur íþróttamannvirkja og forvarnir.
- Skipulags- og umhverfisnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara.Nefndin starfar skv. erindisbréfi bæjarstjórnar. Nefndin annast þau verkefni sem bæjarstjórn felur henni á sviði skipulags- og umhverfismála á grundvelli skipulagslaga nr. 123/2010, laga um mannvirki nr. 160/2010, laga um loftslagsmál nr. 70/2012, laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003, laga um verndun, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 60/1994, laga um náttúruvernd nr. 60/2013, laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015, laga um menningarminjar nr. 80/2012, laga um örnefni nr. 22/2015, laga um landgræðslu nr. 155/2018, umferðarlaga nr. 77/2019 og laga um brunavarnir nr. 75/2000. Nefndin fer með verkefni skipulagsnefndar skv. skipulagslögum nr. 123/2010 og hlutverk náttúruverndarnefndar skv. 14. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
- Framkvæmda- og hafnarnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara. Nefndin starfar skv. erindisbréfi bæjarstjórnar. Nefndin fer með byggingamál skv. lögum um mannvirki nr. 160/2010, brunamál skv. lögum um brunavarnir nr. 75/2000, sorphirðu og sorpförgun, sbr. lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 auk þess sem nefndin sér um umferðarmál skv. umferðarlögum nr. 77/2019. Nefndin fer einnig með málefni hafnarinnar skv. 10. gr. hafnalaga nr. 61/2003 og málefni fráveitu á grundvelli laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009, laga um stuðning við framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum nr. 53/1995, laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 og vegalaga nr. 80/2007. Meðal verkefna nefndarinnar eru byggingarmál, samgöngumannvirki, þjónustumiðstöð, eignasjóður, verklegar framkvæmdir, brunamál, hafnamál og málefni fráveitu.
- Skólanefnd Grunnskólans í Hveragerði. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin annast þau verkefni sem bæjarstjórn felur henni á sviði skólamála á grundvelli laga um leikskóla nr. 90/2008 og laga um grunnskóla nr. 91/2008. Nefndin fer með verkefni skólanefndar, sbr. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008, og verkefni leikskólastjórnar skv. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008.
- Fjallskilanefnd. Fimm aðalmenn og tveir til vara. Nefndin fer með fjallskilamál skv. lögum um afréttamálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986 og fjallskilareglugerð.
- Dreifbýlisnefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin starfar skv. erindisbréfi bæjarstjórnar. Nefndin hefur faglega umsjón með málefnum dreifbýlisins.
- Stjórn vatnsveitu. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin starfar skv. erindisbréfi bæjarstjórnar. Stjórnin hefur umsjón með framkvæmd vatnsveitumála sveitarfélagsins í umboði bæjarstjórnar á grundvelli laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004 og samþykkt þessari.
- Önnur ráð og stjórnir. Bæjarstjórn kýs í eftirfarandi lögbundin notendaráð á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra það sama og bæjarstjórnar:
- Ungmennaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Ungmennaráð er bæjarstjórn til ráðgjafar um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu skv. 2. mgr. 11. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007. Ráðið starfar skv. erindisbréfi sem því er sett.
- Öldungaráð. Sex aðalmenn og jafnmargir til vara. Bæjarstjórn tilnefnir þrjá fulltrúa og þrjá til vara, Félag eldri borgara tilnefnir þrjá fulltrúa og þrjá til vara. Heilbrigðisstofnun Suðurlands tilnefnir einn fulltrúa. Ráðið er bæjarstjórn til ráðgjafar um málefni er varða þjónustu við aldraða og framkvæmd og þróun öldrunarmála skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999. Ráðið starfar skv. erindisbréfi sem því er sett.
- Notendaráð félagsþjónustu. Sex aðalmenn og jafnmargir til vara. Skulu þrír aðalmenn og varamenn vera fulltrúar bæjarstjórnar og þrír aðalmenn og varamenn fulltrúar notenda félagsþjónustu. Bæjarstjórn er heimilt að leita til hagsmunasamtaka notenda félagsþjónustu og óska eftir tilnefningum fyrir hönd notenda. Notendaráð hefur aðkomu að stefnumörkun og áætlanagerð sveitarfélagsins í málefnum sem varða notendur félagsþjónustunnar. Ráðið starfar skv. erindisbréfi sem því er sett.
- Stjórnir og samstarfsráð. Bæjarstjórn kýs í eftirfarandi stjórnir og samstarfsráð sem kosin eru á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra samkvæmt samþykktum um stjórn viðkomandi stofnunar:
- Héraðsnefnd Árnesinga bs. Bæjarstjórn skipar í stjórn samkvæmt samþykktum byggðasamlagsins.
- Bergrisinn bs.Bæjarstjórn skipar í stjórn samkvæmt samþykktum byggðasamlagsins.
- Umdæmisráð barnaverndar. Sveitarfélagið Ölfus stendur sameiginlega að umdæmisráði barnaverndar ásamt öðrum sveitarfélögum á landsbyggðinni, í samræmi við 14. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, en bæjarstjórn skipar í ráðið skv. samningi um umdæmisráð barnaverndar.
- Tilnefningar og kosningar.Fulltrúar eru kosnir á ársþing og ársfundi stofnana sem sveitarfélagið á aðild að. Kosning skal fara fram á fyrsta og/eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og síðan í júní ár hvert vegna þeirra tilnefninga sem gilda í eitt ár:
- Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Bæjarstjórn kýs aðalfulltrúa og varafulltrúa í samræmi við samþykktir Sambands íslenskra sveitarfélaga.
- Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Bæjarstjórn kýs aðalfulltrúa og varafulltrúa í fulltrúaráð í samræmi við samþykktir Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands.
- Aðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands. Bæjarstjórn kýs aðalfulltrúa og varafulltrúa samkvæmt samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands eins og þær eru á hverjum tíma.
- Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Bæjarstjórn kýs aðalfulltrúa og varafulltrúa í samræmi við samþykkt fyrir Heilbrigðiseftirlit Suðurlands.
- Aðalfundur Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Bæjarstjórn kýs aðalfulltrúa og varafulltrúa í samræmi við samþykktir SASS.
- Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands. Bæjarstjórn kýs aðalfulltrúa og varafulltrúa í samræmi við samþykktir Eignarhaldsfélags Suðurlands.
- Verkefnabundnar nefndir. Bæjarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Bæjarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.
VII. KAFLI
Bæjarstjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.
49. gr.
Ráðning bæjarstjóra.
Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og verkefni sveitarfélagsins. Bæjarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími bæjarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil bæjarstjórnar.
50. gr.
Hlutverk bæjarstjóra.
Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins. Hann skal sjá um að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.
Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í bæjarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda og ráða sem bæjarstjórn skipar.
Bæjarstjóri skal sjá um að fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og annarra nefnda bæjarstjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir þær sem teknar eru af hálfu bæjarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi bæjarstjórn ekki falið það öðrum.
Bæjarstjóri er prókúruhafi sveitarfélagsins. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki bæjarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.
Bæjarstjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gegnir störfum bæjarstjóra í forföllum hans nema bæjarstjórn ákveði annað.
51. gr.
Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.
Bæjarstjórn ræður starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu þ.e. sviðsstjóra, og veitir þeim lausn frá störfum, nema á annan veg sé mælt í lögum og reglugerðum.
52. gr.
Um ráðningu annarra starfsmanna.
Yfirmenn ráða sína undirmenn og veita þeim lausn frá störfum nema vald til slíks sé með lögum fengið öðrum aðilum eða á annan veg mælt fyrir í reglugerðum um sérmál tiltekinna stofnana. Um ráðningu annarra starfsmanna en tilgreindir eru í 51. gr. fer eftir ákvæðum reglna vegna starfsmannaráðninga sem bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss hefur sett. Hafa skal samráð við viðkomandi fagnefnd þegar stjórnendur stofnana eru ráðnir.
53. gr.
Framsal bæjarstjórnar til starfsmanna til fullnaðarafgreiðslu mála.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð er bæjarstjórn heimilt að fela sviðsstjórum fullnaðarafgreiðslu mála á sama hátt og með sömu skilyrðum og nefnd eru í 37. gr. samþykktar þessarar.
Framsalsheimildir sviðsstjóra til fullnaðarafgreiðslu skulu koma fram í samþykktum fagnefnda sem hafa eftirlit með heimildum þeirra, í erindisbréfum sviðsstjóra og í viðauka með samþykkt þessari.
Bæjarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu sviðsstjóra en viðkomandi fagráð hafa eftirlit með þeim og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra.
Sviðsstjóra er alltaf heimilt að vísa ákvörðun skv. 1. mgr. til viðkomandi nefndar til fullnaðarafgreiðslu.
54. gr.
Þagnarskylda starfsmanna.
Starfsmenn Sveitarfélagsins Ölfuss og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
55. gr.
Um starfskjör og réttindi starfsmanna.
Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og ákvæðum ráðningarsamninga. Starfslýsing skal ávallt vera hluti ráðningarsamnings þar sem fram kemur stutt lýsing á starfi. Í starfslýsingu skal koma fram starfsheiti, vinnustaður, næsti yfirmaður, markmið starfs og almennt ábyrgðarsvið, helstu verkefni, vinnutími og menntunar- og hæfniskröfur. Starfslýsing er ekki tæmandi upptalning á verkefnum starfsmanns.
VIII. KAFLI
Fjármál sveitarfélagsins.
56. gr.
Fjárstjórnarvald bæjarstjórnar.
Einvörðungu bæjarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitarfélagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar þar á með lögum:
- staðfestingu ársreiknings,
- fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
- fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
- viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
- lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
- sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda,
- álagningu skatta og gjalda,
- ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.
57. gr.
Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.
Bæjarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Bæjarráð leggur samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir bæjarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Bæjarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu bæjarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.
Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.
Bæjarstjórn skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.
58. gr.
Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.
Ákvörðun sem bæjarstjórn tekur skv. 57. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitarstjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.
Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.
Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að bæjarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar bæjarstjórnar skal þá aflað svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi bæjarstjórnar.
59. gr.
Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
60. gr.
Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.
Bæjarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.
Áður en bæjarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.
Um heimildir Sveitarfélagsins Ölfuss til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.
61. gr.
Ársreikningur.
Gera skal ársreikning fyrir bæjarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. bæjarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.
Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af bæjarráði og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.
Bæjarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.
Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.
62. gr.
Endurskoðun ársreikninga.
Bæjarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr. sveitarstjórnarlaga.
IX. KAFLI
Samvinna við önnur sveitarfélög og samningar um starfrækslu verkefna.
63. gr.
Samvinna sveitarfélaga.
Bæjarstjórn er heimilt að eiga samstarf um starfrækslu verkefna við annað eða önnur sveitarfélög og framselja vald til töku ákvarðana um rétt og skyldur manna ef skilyrði 93. gr. sveitarstjórnarlaga eru uppfyllt. Fer um slíkt samstarf skv. IX. kafla sveitarstjórnarlaga og þeim sérlögum sem við eiga.
64. gr.
Samningar við einkaaðila.
Bæjarstjórn er heimilt að gera samninga við einkaaðila um framkvæmd á þjónustu og öðrum verkefnum fyrir sveitarfélagið enda sé áætlað fyrir viðkomandi verkefni í fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins, sbr. 100. gr. sveitarstjórnarlaga. Skulu ákvæði stjórnsýslulaga og upplýsingalaga, sem og almennar meginreglur stjórnsýsluréttar, gilda um þá stjórnsýslu sem verktaki tekur að sér að annast.
IX. KAFLI
Samráð við íbúa – Þátttökulýðræði.
65. gr.
Réttur íbúa til áhrifa á stjórn sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn skal leitast við að tryggja íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess möguleika til að taka þátt í og hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins og undirbúning stefnumótunar, sbr. ákvæði X. kafla sveitarstjórnarlaga.
Bæjarstjórn skal sérstaklega vinna að því að íbúar sveitarfélagsins geti fengið greinargóðar upplýsingar um áætlanir sem sveitarfélagið hefur til meðferðar og önnur mál sem hafa verulega þýðingu fyrir sveitarfélagið. Í því skyni verði eftir því sem best hentar veittar upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins, dreifibréf send á heimili í sveitarfélaginu eða haldnir borgarafundir.
66. gr.
Borgarafundir, íbúaþing, íbúakosningar o.fl.
Um samráð við íbúa, þ.m.t. borgarafundi, íbúaþing og íbúakosningar, gilda ákvæði X. kafla, og 133. gr. sveitarstjórnarlaga, ef frá er talið lágmark þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu og óska almennrar atkvæðagreiðslu, sbr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga.
67. gr.
Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.
Ef 25% þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal bæjarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst. Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk sveitarstjórna og framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu fer skv. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
68. gr.
Gildistaka.
Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Ölfuss nr. 935/2019.
Innviðaráðuneytinu, 21. mars 2024.
F. h. r.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
Ólöf Sunna Jónsdóttir.
VIÐAUKAR (sjá PDF-skjal)
|