1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
- 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks skal það notast við andlitsgrímur.
- Á eftir 2. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður svohljóðandi: Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við leikskólabörn.
- Á eftir lokamálslið 1. mgr. kemur nýr málsl. svohljóðandi: Ákvæði um blöndun hópa, grímuskyldu og nálægðartakmörkun gilda ekki á útisvæðum leikskóla.
- Á eftir orðinu „heimilt“ í 6. mgr. kemur: , þó að hámarki 50 börn saman. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og er í leikskólastarfi.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir orðinu „starfsfólks“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: , milli starfsfólks og nemenda í 8.–10. bekk og milli nemenda í 8.–10. bekk.
- 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun skv. 1. málsl. skulu kennarar og nemendur í 8.–10. bekk notast við andlitsgrímur.
- Á eftir 2. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður svohljóðandi: Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við nemendur í 1.–7. bekk.
- Í stað orðanna „1.–4. bekk“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: 1.–7. bekk.
- Í stað orðanna „5.–10. bekk“ í 1. málsl. 3. mgr. og í 1. og 2. málsl. 4. mgr. kemur: 8.–10. bekk.
- Á eftir 4. mgr. kemur nýr málsl. svohljóðandi: Á útisvæðum grunnskóla gilda ekki ákvæði um blöndun hópa, grímuskyldu eða nálægðartakmörkun milli nemenda.
- Á eftir orðinu „grunnskólastarfi“ í 6. mgr. koma orðin: , í félagsmiðstöðvum.
- 8. mgr. verður svohljóðandi: Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri er heimilt, þ.e. að hámarki 50 börn í 1.–4. bekk og að hámarki 25 í 5.–10. bekk. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og er í grunnskólastarfi.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi 18. nóvember 2020 og gildir til og með 1. desember 2020.
Heilbrigðisráðuneytinu, 16. nóvember 2020.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
|