Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1713/2022

Nr. 1713/2022 28. desember 2022

AUGLÝSING
um skrár yfir störf hjá Ísafjarðarbæ sem eru undanskilin verkfallsheimild.

Skrár (listar) Ísafjarðarbæjar skv. 5.-8. mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lög nr. 129/2020 um skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til voru lagðar fyrir bæjarráð 12. desember 2022 til samþykktar að viðhöfðu samráði við öll hlutaðeigandi stéttarfélög starfsmanna.

 

  1. Listi yfir þau störf sem falla undir 6.-8. tl. 1. mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opin­berra starfsmanna:
Bæjarstjóri 1 staða
Bæjarritari/sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs 1 staða
Sviðsstjóri velferðarsviðs 1 staða
Sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs 1 staða
Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs 1 staða
Fjármálastjóri 1 staða
Deildarstjóri í málefnum fatlaðra 1 staða
Deildarstjóri launadeildar 1 staða
Launafulltrúi 1 staða
Forstöðumaður íþróttamannvirkja á Flateyri, Ísafirði og Suðureyri 1 staða
Forstöðumaður íþróttamannvirkja á Þingeyri 1 staða
Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar 1 staða
Forstöðumaður skammtímavistunar 0,1 staða
Skólastjórar grunnskóla 4 stöður
Aðstoðarskólastjóri 1 staða
Leikskólastjórar 4 stöður
Aðstoðarleikskólastjóri 1 staða
Hafnarstjóri 1 staða
Slökkviliðsstjóri 1 staða
Aðstoðarslökkviliðsstjóri 1 staða
Umsjónarmaður fasteigna Ísafjarðar 1 staða

 

  1. Listi yfir þau störf sem falla undir 5. tl. 1. mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna:
Varðstjóri slökkviliðs 1 staða
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður 1 staða
Forstöðumaður sólarhringsþjónustu að Sindragötu og Fjarðarstræti 1 staða
Forstöðumaður sólarhringsþjónustu að Pollgötu 0,9 stöður
Forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu 1 staða
Starfsmenn stuðningsþjónustu 2,2 stöður
Starfsmenn á dagdeild aldraðra Ísafirði 1,8 stöður
Starfsmenn Hvestu, hæfingarstöðvar og skammtímavistunar Öll stöðugildi. Miðað er við lágmarksmönnun.
Starfsmenn sólarhringsþjónustu Pollgötu, Fjarðarstræti og Sindragötu Öll stöðugildi. Miðað er við lágmarksmönnun á hverju heimili.

 

Þannig samþykkt á fundi bæjarráðs Ísafjarðarbæjar 12. desember 2022 og á fundi bæjarstjórnar 15. desember 2022.

 

Ísafirði, 28. desember 2022.

 

Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 10. janúar 2023