1. gr.
Ferðamannaleið.
Við 13. gr. reglugerðarinnar bætist nýtt merki, F41.11 Ferðamannaleið, sem táknað er með eftirfarandi merki:
Merki þetta má nota til að gefa til kynna að umferð á vegi sem merkið er við fari um ferðamannaleið sem tengir saman áhugaverða áfangastaði sem hafa sögulegt, menningarlegt eða fagurfræðilegt gildi. Á ferðamannaleið skal vera að finna lágmarksþjónustu sem tekur mið af þörfum ferðamanna.
Merkið skal vera rétthyrndur ferhyrningur, 500 mm á breidd og 600 mm á hæð, með merki viðkomandi ferðamannaleiðar á hvítum grunni og brúnum ramma.
2. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 79. og 84. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 6. júní 2019.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
|