1. gr.
Á undan orðinu „fjármálanefnd“ í 1. málslið 1. mgr. 7. gr. reglnanna bætist við orðið: endurskoðunarnefnd.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 2. október 2020.
Jón Atli Benediktsson.
|