Þrátt fyrir ákvæði reglna um námsmat fyrir Háskólann á Akureyri nr. 921/2018 gildir eftirfarandi bókun háskólaráðs um námsmat á haustmisseri 2021:
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu vegna COVID-19 er ljóst að í einhverjum tilfellum þarf að breyta námsmati og fyrirkomulagi prófa á haustmisseri 2021. Breytingar á námsmati og fyrirkomulagi lokaprófa skal liggja fyrir í síðasta lagi 22. nóvember næstkomandi. Umsjónarkennarar námskeiða ákveða tilhögun námsmats og nauðsynlegar breytingar á námsmati í samráði við stjórnendur á fræðasviði. Skal leitast við að fara eftir gildandi reglum um námsmat eftir því sem unnt er. Ef gerðar eru breytingar á fyrirkomulagi eða framkvæmd prófs eða öðru námsmati skal námsmat í endurtökupróftíð vera sambærilegt og í reglulegri próftíð.
Nemendur sem staðist hafa námsmat í námskeiði á haustmisseri 2021 geta óskað eftir að fá birtri lokaeinkunn breytt í „staðið“ á námsferli.
Samkeppnispróf verða haldin á próftökustöðum og nemendum skipt upp í hópa í samræmi við fyrirmæli stjórnvalda um fjöldatakmarkanir vegna farsóttar. Ef allir nemendur geta ekki tekið próf á sama tíma vegna fjöldatakmarkana er heimilt að dreifa próftöku yfir daginn.
Ákvarðanir um framkvæmd prófa og námsmats eru teknar í samræmi við leiðbeiningar stjórnvalda hverju sinni og er þessi ákvörðun kynnt með það að markmiði að eyða óvissu um framkvæmd prófa á haustmisseri til þess að létta álagi af nemendum vegna aðstæðna í samfélaginu vegna COVID-19 .
Auglýsing þessi, sem háskólaráð hefur samþykkt, er birt með stoð í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla og taka ákvæði hennar þegar gildi.
Háskólanum á Akureyri, 18. nóvember 2021.
Eyjólfur Guðmundsson rektor.
|