1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast í réttri númeraröð við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:
|
5.1 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1336 frá 14. maí 2024 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu, fylgiskjal 5.1. |
|
6.1 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/1338 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/1529 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu, fylgiskjal 6.1. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 13. júní 2024.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|