FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með vísan til 24. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, eins og henni var breytt með 5. gr. stjórnarskipunarlaga nr. 51/1991, sbr. 21. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, er ákveðið að þing verði rofið 28. október 2017 og að almennar kosningar til Alþingis fari fram sama dag.
Gjört á Bessastöðum, 18. september 2017.
Guðni Th. Jóhannesson. (L. S.)
Bjarni Benediktsson.
|