Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1384/2021

Nr. 1384/2021 9. nóvember 2021

GJALDSKRÁ
fyrir hreinsun rotþróa í Hvalfjarðarsveit.

1. gr.

Gjaldskrá þessi er sett skv. 23. gr. samþykktar nr. 583/2008 um fráveitur í Hvalfjarðarsveit.

 

2. gr.

Hreinsunargjald skal vera kr. 13.675 á rotþró við hvert íbúðarhús og sumarhús.

Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 50 metra. Ef lengd barka fer yfir 50 metra skal auk þess greiða kr. 3.170 á ári til viðbótar við fastagjaldið.

Endurkomugjald (þ.e. ef rotþró er ekki aðgengileg/tilbúin) 50% álag á hreinsunargjald.

Fjárhæð árgjalds miðast við að tæming eigi sér stað þriðja hvert ár.

Komi fram beiðni um eða ef nauðsynlegt er að tæma rotþró sérstaklega (utan reglubundinnar losunar) skal greiða fyrir það skv. reikningi frá losunaraðila, bæði fyrir hreinsun og akstur.

Gjöld þessi miðast við vísitölu neysluverðs í október 2021 og uppfærast samkvæmt breytingum í janúar ár hvert, fyrst í janúar 2023 og skulu gilda þannig næsta ár.

 

3. gr.

Gjalddagar hreinsunargjalds skv. 2. gr. skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fast­eigna­skatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. Skráður eig­andi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu gjaldsins.

 

4. gr.

Hreinsunargjald er heimilt að innheimta með fjárnámi í fasteign án tillits til eigendaskipta. Hreins­unar­gjald nýtur lögveðsréttar í fasteign næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.

 

5. gr.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar með stoð í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og öðlast gildi 1. janúar 2022. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1145/2016.

 

Samþykkt í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar, 9. nóvember 2021.

 

Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 2. desember 2021