Inngangur.
Gjaldtakan er byggð á heimild í IX. kafla, 50., 51. og 53. gr., laga um mannvirki, nr. 160/2010, og skv. V. kafla, 18., 19. og 20. gr., skipulagslaga nr. 123/2010.
1. gr.
Gjaldskrá er hlutfallsprósenta af verðgrunni fyrir gatnagerðargjald, sbr. útreikning Hagstofu Íslands.
Afgreiðslugjald er greitt við móttöku umsóknar um byggingarleyfi, framkvæmdaleyfi og skipulagsbreytingar. Í gjaldinu felst kostnaður sveitarfélagsins við móttöku og yfirferð erindisins. Gjaldið er ekki afturkræft þótt umsókn sé dregin til baka eða synjað.
Byggingarleyfisgjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið í gjaldinu byggingarleyfisgjald, gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, öryggisúttektar og lokaúttektar.
Í gjaldskránni kemur fram að aðili sem óskar eftir breytingu á aðal- og/eða deiliskipulagi skal greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér. Í umsýslu- og auglýsingakostnaði felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins. Skipulagsnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.
1.0 Almenn umsýsla |
hlutfall |
kr. |
1.0.1 Afgreiðslugjald skipulags- og byggingarfulltrúa |
10% |
30.198 |
Byggingarleyfisgjöld |
1.1 Íbúðarhúsnæði |
hlutfall |
kr. |
1.1.1 Einbýlishús |
100% |
301.984 |
1.1.2 Par-, tvíbýlis-, rað- og keðjuhús, pr. íbúð |
75% |
226.488 |
1.1.3 Fjölbýlishús, pr. íbúð |
50% |
150.992 |
1.1.4 Minniháttar breytingar á útliti og innra skipulagi |
10% |
30.198 |
1.1.5 Meiriháttar breytingar á útliti og innra skipulagi |
25% |
75.496 |
1.1.6 Frístundahús |
50% |
150.992 |
1.1.7 Annað |
|
samkvæmt reikningi |
1.2. Atvinnu- og þjónustuhús og stofnanir, húsnæði með íbúðum (A-rými) |
hlutfall |
kr. |
1.2.1 Gólfflötur allt að 500 fermetrar |
100% |
301.984 |
1.2.2 Gólfflötur 501 til 1.000 fermetrar |
200% |
603.968 |
1.2.3 Gólfflötur 1.001 til 2.000 fermetrar |
300% |
905.952 |
1.2.4 Gólfflötur yfir 2.000 fermetra |
400% |
1.207.936 |
1.3. Óeinangraðar geymslur og áþekk hús (B-rými) |
hlutfall |
kr. |
1.3.1 Gólfflötur allt að 500 fermetrar |
50% |
150.992 |
1.3.2 Gólfflötur 501 til 1.000 fermetrar |
100% |
301.984 |
1.3.3 Gólfflötur 1.001 til 2.000 fermetrar |
150% |
452.976 |
1.3.4 Gólfflötur yfir 2.000 fermetra |
200% |
603.968 |
1.4. Ýmis hús og hvers konar viðbyggingar (t.d. sólstofur, garðhús eða bílgeymslur) |
hlutfall |
kr. |
1.4.1 Gólfflötur allt að 40 fermetrar |
40% |
120.794 |
1.4.2 Gólfflötur 41 til 100 fermetrar |
60% |
181.190 |
Byggingarleyfisgjöld af viðbyggingum sem eru stærri en 100 fermetrar skulu vera þau sömu og byggingarleyfisgjöld af því húsnæði sem byggt er við. |
|
|
Þjónustugjöld |
1.5. Stöðuleyfi, sbr. gr. 2.6. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 |
hlutfall |
kr. |
1.5.1 Stöðuleyfi veitt til allt að eins árs |
25% |
75.496 |
Afgreiðslugjald vegna umsókna stöðuleyfa er rukkað skv. lið 1.1.6. í gjaldskrá |
|
|
1.6. Önnur gjöld |
hlutfall |
kr. |
1.6.1 Hver endurskoðaður aðaluppdráttur |
8,5% |
25.669 |
1.6.2 Endurnýjun leyfis án breytinga |
10% |
30.198 |
1.6.3 Umsögn vegna leyfisveitinga |
10% |
30.198 |
1.6.4 Gjald fyrir útkall þegar verk reynist ekki úttektarhæft |
10% |
30.198 |
1.6.5 Aukaútsetning lóðar/húss; pr. mælingu |
15% |
45.298 |
1.7. Skoðunargjald vegna yfirlesturs eignaskiptayfirlýsinga |
eining |
|
1.7.1 Viðauki við eignaskiptayfirlýsingu |
2,0 |
32.400 |
1.7.2 Eignaskiptayfirlýsing, eignarhlutar 2-5 eignir |
3,0 |
48.600 |
1.7.3 Eignaskiptayfirlýsing, eignarhlutar 5-15 eignir |
4,0 |
64.800 |
1.7.4 Eignaskiptayfirlýsing, eignarhlutar 15-50 eignir |
5,0 |
81.000 |
1.7.5 Eignaskiptayfirlýsing, eignarhlutar 50 eignir og fleiri |
6,0 |
97.200 |
1.7.6 Eignaskiptayfirlýsing, aukagjald fyrir hvern þriðja yfirlestur |
1,0 |
16.200 |
Gjald vegna skipulagsbreytinga |
2.1. Aðalskipulag |
hlutfall |
kr. |
2.1.1 Breytingar á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 35. gr. skipulagslaga |
|
Samkvæmt reikningi |
2.1.2 Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga |
75% |
226.488 |
2.1.4 Óveruleg breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga |
|
samkvæmt reikningi |
2.1.3 Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga |
30% |
90.595 |
2.2. Deiliskipulag |
hlutfall |
kr. |
2.2.1 Nýtt deiliskipulag eða breyting á deiliskipulagi |
|
samkvæmt reikningi |
2.2.2 Umsýslu- og auglýsingakostnaður |
|
samkvæmt reikningi |
2.3. Grenndarkynning |
hlutfall |
kr. |
2.3.1 Umsýslugjald vegna grenndarkynningar |
17% |
51.337 |
2.4. Framkvæmdaleyfi |
hlutfall |
kr. |
2.4.1 Framkvæmdagjald - framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 |
75% |
226.488 |
|
|
eða samkvæmt reikningi |
2.4.2 Framkvæmdaleyfi aðrar framkvæmdir |
40% |
120.794 |
|
|
eða samkvæmt reikningi |
2.4.3 Eftirlit umfram viðmiðunargjald |
|
Samkvæmt reikningi |
2. gr.
Gjalddagi.
Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu greidd innan eins mánaðar frá dagsetningu afgreiðslubréfs sveitarfélagsins. Leyfis- og þjónustugjöld endurgreiðast ekki þótt leyfi til framkvæmda falli úr gildi eða sé fellt úr gildi. Þó skulu þjónustugjöld endurgreidd verði ekki af framkvæmdum á gildistíma byggingarleyfis.
3. gr.
Lögveð.
Byggingar- og framkvæmdaleyfisgjöldum fylgir lögveð í viðkomandi fasteign og gjaldfallin gjöld má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, sbr. 51. og 52. gr. sömu laga. Byggingarleyfisgjöld ásamt gjöldum fyrir úttekt og mælingar eru ákvörðuð og gjaldfalla við útgáfu byggingarleyfis. Önnur gjöld gjaldfalla við afhendingu tilheyrandi gagna.
4. gr.
Önnur þjónustugjöld.
Reykjanesbæ er heimilt að innheimta önnur þjónustugjöld en mælt er fyrir um í gjaldskrá þessari, sbr. IX. kafla laga um mannvirki, enda nemi þau ekki hærri fjárhæð en sem nemur kostnaði við að veita þjónustuna.
5. gr.
Verðlagsbreytingar.
Grunnstofn er ákveðið hlutfall af verðgrunni fyrir gatnagerðargjald samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Gjöld skv. gjaldskrá þessari miðast við verðgrunn fyrir gatnagerðargjald í desember 2024 og breytist síðan 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölu. Verðgrunnur fyrir gatnagerðargjald er 301.984 kr.
6. gr.
Gildistaka o.fl.
Gjaldskrá þessi, sem öðlast þegar gildi, er samþykkt af bæjarstjórn Reykjanesbæjar með heimild í 20. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010, og 51. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010. Sá hluti gjaldskrár nr. 1207/2016, sem tók á sama efni, fellur úr gildi með gildistöku þessarar gjaldskrár.
Samþykkt í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, 17. desember 2024.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir starfandi bæjarstjóri.
|