Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 619/2024

Nr. 619/2024 17. maí 2024

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 203/2023 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1165 um að leyfa tilteknar vörur og efni til notkunar við lífræna framleiðslu og koma á fót skrám yfir þau.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftir­taldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1165 frá 15. júlí 2021 um að leyfa tilteknar vörur og efni til notkunar við lífræna framleiðslu og koma á fót skrám yfir þau. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 38/2022, frá 4. febrúar 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 18, frá 17. mars 2022, bls. 586.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/121 frá 17. janúar 2023 um breytingu og leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/1165 um að leyfa tilteknar vörur og efni til notkunar við lífræna framleiðslu og koma á fót skrám yfir þau. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 211/2023, frá 22. september 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 79, frá 2. nóvember 2023, bls. 381.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2229 frá 25. október 2023 um breytingu og leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/1165 um að leyfa tilteknar vörur og efni til notkunar við lífræna framleiðslu og koma á fót skrám yfir þau. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2024, frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 34, frá 25. apríl 2024, bls. 634.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og II. kafla laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Matvælastofnun er heimilt að framselja opinbert eftirlit með lífrænni framleiðslu og merkingu lífrænna vara til faggildra vottunarstofa, sbr. 23. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

Eftirlit með smásölu lífrænna vara er í höndum heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, sbr. 6. gr. k laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. j laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 17. maí 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 29. maí 2024