Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 641/2024

Nr. 641/2024 29. maí 2024

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1138/2007 um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:

  1. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 100/2013 frá 15. janúar 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1406/2002 um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 327/2023 frá 8. desember 2023. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 100/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 468-478 og verður hluti af reglugerð þessari.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 40. skipalaga nr. 66/2021, öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 29. maí 2024.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. maí 2024