1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 39. gr. samþykktarinnar:
- 1. tl. breytist og orðast svo: Menningar- og markaðsnefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Menningar- og markaðsnefnd fer með lögbundin verkefni sem tengjast málaflokkum sem undir hana falla og önnur þau verkefni sem tengjast þeim og undir nefndina falla. Um er að ræða málefni bókasafna skv. ákvæðum bókasafnalaga, nr. 150/2012, og málefni héraðsskjalasafns, sbr. lög um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014, málefni félagsheimila, sbr. ákvæði laga um félagsheimili, nr. 107/1970, málefni byggðasafns, sbr. ákvæði safnalaga, nr. 141/2011, málefni húsaverndar og verndun menningarminja, sbr. lög um menningarminjar, nr. 80/2012. Að auki skal nefndin hlutast til um og móta tillögur til sveitarstjórnar um ferða-, markaðs- og kynningarmál fyrir Hvalfjarðarsveit auk menningarmála og listviðburða.
- 2. tl. breytist og orðast svo: Velferðar- og fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Velferðar- og fræðslunefnd fer með lögbundin verkefni sem tengjast málaflokkum sem undir hana falla. Um er að ræða verkefni félagsmálanefndar skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, jafnréttismál sveitarfélagsins skv. 2. mgr. 13. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020, verkefni á sviði húsnæðismála, sbr. ákvæði laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, ákvæði laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, og laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016, málefni fatlaðs fólks samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, málefni aldraðra, sbr. ákvæði laga nr. 125/1999, málefni innflytjenda, sbr. ákvæði laga nr. 116/2012, verkefni vegna daggæslu í heimahúsum, sbr. reglugerð nr. 907/2005, auk verkefna á sviði forvarna. Nefndin fer ekki með yfirstjórn í barnaverndarþjónustu sveitarfélagsins samkvæmt barnaverndarlögum, nr. 80/2002, en hefur, í samræmi við samning sveitarfélagsins við Borgarbyggð um barnaverndarþjónustu, eftirlitshlutverki að gegna gagnvart samningnum. Velferðar- og fræðslunefnd hefur umsjón með styrkveitingum og samskiptum sveitarfélagsins við einstaklinga og félög vegna frístundamála. Velferðar- og fræðslunefnd fylgist með að starfsemi íþrótta- og æskulýðsstarfs sé samkvæmt ákvæðum æskulýðslaga, nr. 70/2007. Velferðar- og fræðslunefnd skal hlutast til um mótun, setningu og endurskoðun forvarnarstefnu og skipulag forvarnarstarfs. Velferðar- og fræðslunefnd hefur umsjón með frístunda- og íþróttamálum á vegum sveitarfélagsins m.a. skoðun á framboði tómstunda- og félagsstarfs í sveitarfélaginu. Velferðar- og fræðslunefnd hefur umsjón með rekstri vinnuskóla í Hvalfjarðarsveit og íþróttamannvirkja og sundlauga sem falla undir umsjón velferðar- og fræðsludeildar. Velferðar- og fræðslunefnd fer með verkefni skólanefndar skv. 6. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, málefni leikskóla samkvæmt lögum um leikskóla, nr. 90/2008, málefni tónlistarskóla samkvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985, umsjón og eftirlit með framkvæmd skólaaksturs, sbr. ákvæði reglna um skólaakstur í grunnskóla, nr. 656/2009. Velferðar- og fræðslunefnd skal, eftir því sem við á, fylgjast með málefnum er varða framhaldsskóla og sveitarfélög. Velferðar- og fræðslunefnd hefur umsjón með starfsemi félagsmiðstöðva og annarrar frístundaaðstöðu sem fellur undir umsjón skólastjóra. Velferðar- og fræðslunefnd skal fylgjast með og meta reglulega þörf fyrir rekstur frístundaheimilis, sbr. ákvæði 33. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008.
- 3. tl. fellur brott og uppfærast eftirfarandi töluliðir í samræmi við það.
2. gr.
Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 14. mars 2025.
F. h. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra,
Aðalsteinn Þorsteinsson.
|