Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 762/2024

Nr. 762/2024 30. maí 2024

SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Húnabyggðar, nr. 1181/2022.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 47. gr. samþykktarinnar:

  1. Orðið „barnavernd“ í 1. tl. C-liðar fellur brott.
  2. Orðin „málefni fatlaðs fólks“ í 1. tl. C-liðar fellur brott.
  3. Við C-lið bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
    1. Umdæmisráð barnaverndar. Samkvæmt samningi um rekstur umdæmisráðs lands­byggða skipa aðildarsveitarfélögin fimm manna valnefnd sem fer með umboð sveitar­félaganna til skipunar í umdæmisráð barnaverndar. Skipunartími umdæmis­ráðs er fimm ár.
    2. Barnaverndarþjónusta á Mið-Norðurlandi. Samkvæmt samningi um rekstur barna­verndarþjónustu á Mið-Norðurlandi, sbr. auglýsingu nr. 1627/2022 fer sveitar­félagið Skagafjörður með verkefni barnaverndarþjónustu samkvæmt 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, sem ekki eru falin öðrum.
    3. Samráðshópur í málefnum fatlaðs fólks. Samkvæmt samningi um sameiginlegt þjónustusvæði á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk, sbr. auglýsingu nr. 710/2016, skipa aðildarsveitarfélögin hvert einn fulltrúa í þjónusturáð.

 

2. gr.

Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Húnabyggðar hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 30. maí 2024.

 

F. h. r.

Guðni Geir Einarsson.

Ólöf Sunna Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 28. júní 2024