1. gr.
Gjaldskrá þessi gildir fyrir orkuveitusvæði Bláskógaveitu frá og með birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda. Öll verð í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts.
2. gr.
Afnotagjöld af heitavatninu eru sem segir:
Daggjald/mælagjald/hemlagjald |
kr./dag |
Stærð mælis/hemils |
DN 15 mm |
39,33 |
Stærð mælis/hemils |
DN 20 mm |
40,35 |
Stærð mælis/hemils |
DN 25 mm |
61,12 |
Stærð mælis/hemils |
DN 32 mm |
63,37 |
Stærð mælis/hemils |
DN 40 mm |
104,71 |
Stærð mælis/hemils |
DN 50 mm |
157,82 |
Stærð mælis/hemils |
DN 65 mm |
193,65 |
Stærð mælis/hemils |
DN 80 mm |
225,91 |
|
|
|
Heitt vatn um rennslismæli, Biskupstungum |
kr./m³ |
H1A. |
Almenn notkun, íbúðarhús/sumarhús |
111,94 |
H3A. |
Garðyrkja/Hitaveitan Brúin |
27,58 |
V4A. |
Verslun, iðnaður og opinberar byggingar |
83,96 |
|
|
|
Heitt vatn um hemil, Biskupstungum |
kr./mínútulítra á dag |
L1. |
Garðyrkja |
12,04 |
L2. |
Íbúðarhús/sumarhús |
99,12 |
L3. |
Verslun, iðnaður og opinberar byggingar |
41,70 |
H1D. |
Hemlagjald |
84,85 |
|
|
|
Heitt vatn um rennslismæli, Laugardal |
kr./m³ |
H1L. |
Almenn notkun, íbúðarhús/sumarhús |
111,94 |
H3L. |
Garðyrkja |
27,58 |
V4L. |
Verslun, iðnaður og opinberar byggingar |
83,96 |
|
|
|
Heitt vatn um hemil, Laugardal |
kr./mínútulítra á dag |
H2. |
Íbúðarhús/sumarhús |
99,12 |
H4. |
Mýrarhúsaskógur |
99,12 |
3. gr.
Tengigjöld Bláskógaveitu eru sem hér segir:
Íbúðarhús að 450 m³ |
312.598 |
kr. m³ umfram m³ 234 kr. |
Opinberar byggingar og iðnaðarhús að 450 m³ |
312.598 |
kr. m³ umfram m³ 67 kr. |
Gróðurhús og stórnotendur |
5.278 |
kr. mínútulítrinn lágmark 60 m/l |
Sumarhús |
529.844 |
kr. fast gjald |
4. gr.
Tengigjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við byggingarvísitölu. Grunnvísitala (grunnur 2010) októbermánaðar 2013, 118,7 stig. Bláskógaveitu er heimilt að breyta tengigjöldum í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu.
5. gr.
Lágmarksnotkun fyrir sumarhús er 642 rúmmetrar á ári og skal ávallt greiða fyrir þá notkun samkvæmt gjaldskrá. Fari ársnotkun sumarhúss fram yfir 642 rúmmetra á ári, skal greiða fyrir hvern umframrúmmetra skv. gjaldskrá auk lágmarksnotkunargjaldsins. Fastagjaldið greiðist óháð notkun.
6. gr.
Lágmarksstilling á hemli verður 3 l/m.
7. gr.
Bláskógaveita hefur rétt til að loka fyrir afhendingu á heitu vatni til húsveitu viðskiptamanns sem vanrækt hefur að greiða hitaveitugjöld skv. gjaldskrá þessari. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilunum veldur, hverju sinni 7.027 kr.
8. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var af veitustjórn Bláskógaveitu þann 6. desember 2017 og staðfest af sveitarstjórn Bláskógabyggðar þann 7. desember 2017, er hér með staðfest samkvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum. Á sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis, nr. 1265/2016.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. janúar 2018.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Ingvi Már Pálsson.
Hreinn Hrafnkelsson.
|