1. gr.
Innleiðing.
Við 11. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1119 frá 31. júlí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar yfirlýst þjálfunarfyrirtæki, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 315/2019 frá 13. desember 2019, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14 frá 5. mars 2020, bls. 77.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 28. gr. b, 31. gr. og 32. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 20. maí 2020.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
|