1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
|
1.13 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/457 frá 2. mars 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/119/SSUÖ um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 1.13. |
|
2.14 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/449 frá 2. mars 2023 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 208/2014 um þvingunaraðgerðir sem er beint gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 2.14. |
|
3.68 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/432 frá 25. febrúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.68. |
|
3.69 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/572 frá 13. mars 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.69. |
|
4.76 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/426 frá 25. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.76. |
|
4.77 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/429 frá 25. febrúar 2023 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.77. |
|
4.78 |
Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/571 frá 13. mars 2023 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.78. |
|
7.31 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/434 frá 25. febrúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.31. |
|
8.23 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/427 frá 25. febrúar 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.23. |
|
9.3 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/388 frá 20. febrúar 2023 um breytingu á ákvörðun 2022/266/SSUÖ um þvingunaraðgerðir til að bregðast við ólöglegri viðurkenningu, yfirtöku eða innlimunar Rússlands á ákveðnum héruðum í Úkraínu, sem lúta ekki stjórn ríkisstjórnar, sbr. fylgiskjal 9.3. |
2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 31. mars 2023.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|