1. gr.
Innleiðing.
Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1329 frá 31. júlí 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar starfrækslu flugrekenda í Sambandinu á loftförum sem eru skráð í þriðja landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 226 frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt á bls. 1794 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 63 frá 15. október 2015.
2. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 85. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Ákvæði d-liðar ORO.AOC.110, sem sett eru fram í ii. lið b-liðar 2. liðar í viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1329, koma til framkvæmda 25. ágúst 2017.
Innanríkisráðuneytinu, 2. febrúar 2016.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Björn Freyr Björnsson.
|