Alþjóðasamningur um samræmingu tiltekinna reglna varðandi loftflutninga milli landa (e. Convention for the Unification of Certain Rules for International Carriage by Air) sem gerður var í Montreal 1999 hefur öðlast lagagildi, sbr. XVII. kafli laga um loftferðir nr. 80/2022.
Með vísan til 24. gr. samningsins hefur Alþjóðaflugmálastofnunin, sem er vörsluaðili samningsins, tilkynnt um breytingu á fjárhæðum samningsins. Upphæðirnar eru gefnar upp í sérstökum dráttarréttindum (SDR) og eru sem hér segir:
Montreal-samningurinn frá 1999 |
Upphafleg fjárhæð samningsins (SDR) |
Endurskoðuð fjárhæð í SDR (2019) |
Endurskoðuð fjárhæð í SDR (2024) |
21. gr. |
100.000 |
128.821 |
151.880 |
1. mgr. 22. gr. |
4.150 |
5.346 |
6.303 |
2. mgr. 22. gr. |
1.000 |
1.288 |
1.519 |
3. mgr. 22. gr. |
17 |
22 |
26 |
Endurskoðaðar fjárhæðir Montreal-samningsins frá 2024 taka gildi frá gildistöku auglýsingu þessarar.
Auglýsing þessi er sett með vísan til 2. mgr. 212. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 10. desember 2024.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
|