Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 709/2011

Nr. 709/2011 14. júlí 2011
REGLUGERÐ
um veiðigjald og þorskígildi fiskveiðiárið 2011/2012.

1. gr.

Fiskistofa leggur á veiðigjald. Á fiskveiðiárinu 1. september 2011 til 31. ágúst 2012 skulu eigendur skipa greiða kr. 9,46 fyrir hvert þorskígildiskílógramm úthlutaðra veiðiheimilda.

Veiðigjald skal lagt á við úthlutun veiðiheimilda sem úthlutað er á grundvelli aflahlutdeildar. Veiðigjald vegna aflamarks sem úthlutað er 1. september fellur í gjalddaga með þremur jöfnum greiðslum 1. október, 1. janúar og 1. maí. Taki úthlutun veiðiheimilda gildi eftir þann tíma fellur gjaldið í gjalddaga við útgáfu tilkynningar um úthlutaðar veiðiheimildir.

Veiðigjald landaðs afla einstakra tegunda, sem ekki eru háðar aflamarki, skal lagt á þann 31. ágúst 2012. Gjaldið skal miða við landaðan afla á tímabilinu 1. ágúst 2011 til 31. júlí 2012 og afla sem fenginn er við strandveiðar á tímabilinu 1. maí til 31. ágúst 2012 samkvæmt veiðigjaldi og þorskígildisstuðlum þess tímabils sem afli var veiddur. Gjalddagi þess skal vera 1. október 2012.

Eigandi skips við álagningu veiðigjalds er ábyrgur fyrir greiðslu þess.

2. gr.

Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2011 til 31. ágúst 2012 eru þessir:

Tegund

Stuðlar

Tegund

Stuðlar

Tegund

Stuðlar

Þorskur

1,00

Humar (slitinn)

4,35

Spærlingur

0,10

Ýsa

0,89

Innfjarðarækja

0,52

Trjónukrabbi

0,37

Ufsi

0,63

Úthafsrækja

0,67

Geirnyt

0,14

Gullkarfi

0,71

Litli karfi

0,38

Djúpkarfi

0,84

Langa

0,55

Lýsa

0,40

Beitukóngur

0,24

Keila

0,37

Blálanga

0,50

Kræklingur

0,25

Steinbítur

0,83

Slétti langhali

0,28

Blágóma

0,22

Skötuselur

1,57

Tindaskata

0,10

Búrfiskur

0,83

Grálúða

2,12

Hlýri

0,89

Snarphali

0,23

Skarkoli

0,68

Skata

0,58

Náskata

0,29

Sólkoli

1,14

Háfur

0,75

Sandhverfa

2,62

Langlúra

0,54

Hákarl

0,05

Urrari

0,12

Sandkoli

0,25

Hámeri

1,71

Stinglax

0,38

Skrápflúra

0,28

Gulllax

0,47

Ígulker

0,33

Smokkfiskur

0,09

Lúða

2,69

Sæbjúga

0,16

Síld

0,13

Öfugkjafta

0,27

Rauðmagi

0,33

Loðna

0,10

Gulldepla

0,09

Grásleppa

0,77

Stóra brosma

0,23

Vogmær

0,10

Hvítskata

0,21

Þorskígildisstuðlar vegna aflaheimilda sem miðast við almanaksárið 2012 eru þessi:

Tegund

Stuðlar

Norsk-íslensk síld

0,16

Norður-Íshafsþorskur

1,00

Kolmunni

0,13

Úthafskarfi

0,82

Rækja á Flæmingjagrunni

0,69

Makríll

0,22

Ofangreindir stuðlar gilda við álagningu veiðigjalds, sbr. 22. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða með síðari breytingum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 14. júlí 2011.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Arndís Á. Steinþórsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 15. júlí 2011