1. gr.
Við 11. gr. reglugerðarinnar bætast nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1974 frá 14. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða áhöfn í almenningsflugi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 433.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/27 frá 19. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða áhöfn í almenningsflugi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 508.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/430 frá 18. mars 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar að neyta takmarkaðra réttinda án eftirlits áður en flugmannsskírteini fyrir létt loftför er gefið út, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 539.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1747 frá 15. október 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar kröfur fyrir tiltekin vottorð og flugliðaskírteini, reglur um þjálfunarfyrirtæki og lögbær yfirvöld, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 734.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/359 frá 4. mars 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða áhöfn í almenningsflugi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 866.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/723 frá 4. mars 2020 um ítarlegar reglur að því er varðar viðurkenningu á vottun flugmanna í þriðja landi og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 382.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2227 frá 14. desember 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar kröfur varðandi starfrækslu í skertu skyggni og varðandi þjálfun til blindflugs- og tegundaráritunar í þyrlu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2023 frá 28. apríl 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 354.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 29. gr., 73. gr., 83. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 19. febrúar 2024.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
|