Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Byggðastofnun að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. desember 2020 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið:
Bifreiðabensín |
0,10 kr. á lítra |
Gasolía |
0,60 kr. á lítra |
Aðrar olíur og blöndur til brennslu |
0,00 kr. á kg |
Flugsteinolía (þotueldsneyti) |
0,30 kr. á lítra |
Flugvélabensín |
0,00 kr. á lítra |
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreifingaraðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Innheimtumenn ríkissjóðs annast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins.
Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 1219/2019.
Byggðastofnun, 17. nóvember 2020.
Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri.
Arnar Már Elíasson, formaður stjórnar Flutningsjöfnunar- sjóðs olíuvara.
|