Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1139/2024

Nr. 1139/2024 7. október 2024

REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð nr. 234/2020 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 um opinbert eftirlit og aðra opinbera starfsemi með matvælum, fóðri o.fl.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftir­talin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/671 frá 4. febrúar 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar sértækar reglur um opinbert eftirlit sem lögbær yfirvöld inna af hendi með dýrum, afurðum úr dýraríkinu og kím­efnum, eftirfylgniaðgerðir sem lögbært yfirvald á að grípa til ef ekki er farið að reglum um auð­kenningu og skráningu nautgripa, sauðfjár og geita eða ef ekki er farið að tilskildum ákvæðum meðan á umflutningi stendur á tilteknum nautgripum gegnum Sambandið og um niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 494/98. Reglugerðin var felld inn í EES-samn­inginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2024, frá 12. júní 2024. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 65, frá 29. ágúst 2024, bls. 88.

Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2024.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 7. október 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 16. október 2024