Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 619/2012

Nr. 619/2012 13. júlí 2012
REGLUGERÐ
um fjárhæð, álagningu og innheimtu veiðigjalda og þorskígildisstuðla fiskveiðiárið 2012/2013.

I. KAFLI

Fjárhæð, álagning og innheimta veiðigjalda.

1. gr.

Fiskistofa leggur á almennt og sérstakt veiðigjald samkvæmt reglugerð þessari. Eigandi skips við álagningu veiðigjalda er ábyrgur fyrir greiðslu þeirra. Fiskistofa annast innheimtu veiðigjalda.

2. gr.

Fjárhæð almenns veiðigjalds.

Á fiskveiðiárinu 1. september 2012 til 31. ágúst 2013 skulu gjaldskyldir aðilar samkvæmt lögum nr. 74/2012 um veiðigjöld greiða 9,50 kr. í almennt veiðigjald fyrir hvert þorskígildiskíló úthlutaðs aflamarks eða landaðs afla einstakra tegunda. Almennt veiðigjald á hvert skip skal þó aldrei vera lægra en 5.000 kr.

3. gr.

Álagning og innheimta almenns veiðigjalds.

Almennt veiðigjald skal lagt á við úthlutun aflamarks sem úthlutað er á grundvelli aflahlutdeildar. Almennt veiðigjald vegna aflamarks sem úthlutað er 1. september fellur í gjalddaga með fjórum jöfnum greiðslum 1. október 2012, 1. janúar 2013, 1. apríl 2013 og 1. júlí 2013. Taki úthlutun aflamarks gildi eftir þann tíma fellur gjaldið í gjalddaga við útgáfu tilkynningar um úthlutað aflamark.

Almennt veiðigjald á landaðan afla einstakra tegunda, sem ekki eru háðar aflamarki, skal lagt á þann 31. ágúst 2013. Gjaldið skal miða við landaðan afla á tímbilinu 1. ágúst 2012 til 31. júlí 2013 og afla sem fenginn er við strandveiðar á tímabilinu 1. maí 2013 til 31. ágúst 2013. Almennt veiðigjald og þorskígildisstuðlar miðast við það tímabil sem afla var landað. Gjalddagi þess skal vera 1. október 2013.

4. gr.

Fjárhæð sérstaks veiðigjalds.

Á fiskveiðiárinu 1. september 2012 til 31. ágúst 2013 skulu gjaldskyldir aðilar samkvæmt lögum nr. 74/2012 um veiðigjöld greiða sérstakt veiðigjald fyrir hvert úthlutað þorskígildiskíló úthlutaðra veiðiheimilda eða landaðs afla einstakra tegunda. Sérstakt veiðigjald skal vera 27,50 kr. á hvert þorskígildiskíló í uppsjávarveiðum og 23,20 kr. á hvert þorskígildiskíló í botnfiskveiðum eins og þær veiðar eru skilgreindar í 3. gr. laga nr. 74/2012 um veiðigjöld.

5. gr.

Álagning og innheimta sérstaks veiðigjalds.

Sérstakt veiðigjald skal lagt á við úthlutun aflamarks sem úthlutað er á grundvelli aflahlutdeildar. Sérstakt veiðigjald vegna aflamarks sem úthlutað er 1. september fellur í gjalddaga með fjórum jöfnum greiðslum 1. október 2012, 1. janúar 2013, 1. apríl 2013 og 1. júlí 2013. Taki úthlutun aflamarks gildi eftir þann tíma fellur gjaldið í gjalddaga við útgáfu tilkynningar um úthlutað aflamark.

Sérstakt veiðigjald á landaðan afla einstakra tegunda, sem ekki eru háðar aflamarki, skal lagt á þann 31. ágúst 2013. Gjaldið skal miða við landaðan afla á tímabilinu 1. ágúst 2012 til 31. júlí 2013 og afla sem fenginn er við strandveiðar á tímabilinu 1. maí 2013 til 31. ágúst 2013. Sérstakt veiðigjald og þorskígildisstuðlar miðast við það tímabil sem afla var landað.

Gjalddagi þess skal vera 1. október 2013.

Álagning sérstaks veiðigjalds á hvern gjaldskyldan aðila samkvæmt reglugerð þessari skal vera þannig á fiskveiðiárinu 2012 til 2013:

a.Af fyrstu 30.000 þorskígildiskílóum hvers gjaldskylds aðila greiðist ekkert sérstakt veiðigjald.
b.Af næstu 70.000 þorskígildiskílóum hvers gjaldskylds aðila greiðist hálft sérstakt veiðigjald.
c.Af þorskígildiskílóum hvers gjaldskylds aðila umfram 100.000 greiðist fullt sérstakt veiðigjald.

II. KAFLI


Þorskígildi.

6. gr.

Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2012 til 31. ágúst 2013 eru:

Tegund

Stuðull

Tegund

Stuðull

Tegund

Stuðull

Þorskur

1,00

Humar (slitinn)

4,70

Spærlingur

0,08

Ýsa

0,92

Innfjarðarækja

0,67

Trjónukrabbi

0,04

Ufsi

0,73

Úthafsrækja

0,73

Geirnyt

0,08

Gullkarfi

0,82

Litli karfi

0,36

Djúpkarfi

1,03

Langa

0,59

Lýsa

0,42

Beitukóngur

0,37

Keila

0,39

Blálanga

0,52

Kræklingur

0,50

Steinbítur

0,85

Slétti langhali

0,44

Blágóma

0,27

Skötuselur

1,74

Tindaskata

0,10

Búrfiskur

1,61

Grálúða

2,47

Hlýri

1,02

Snarphali

0,26

Skarkoli

0,74

Skata

0,37

Náskata

0,26

Sólkoli

1,41

Háfur

0,88

Sandhverfa

1,85

Langlúra

0,61

Hákarl

0,05

Urrari

0,08

Sandkoli

0,26

Hámeri

2,15

Stinglax

0,49

Skrápflúra

0,21

Gulllax

0,57

Ígulker

0,64

Smokkfiskur

0,71

Lúða

3,01

Sæbjúga

0,16

Síld

0,20

Öfugkjafta

0,43

Rauðmagi

0,29

Loðna

0,08

Gulldepla

0,08

Grásleppa

0,74

Stóra brosma

0,22

Vogmær

0,08

Hvítskata

0,24

Túnfiskur

4,31

Gjölnir

0,20

  

Þorskígildisstuðlar vegna aflaheimilda sem miðast við almanaksárið 2013 eru:

Tegund

Stuðull

Norsk-íslensk síld

0,25

Norður-Íshafsþorskur

1,00

Kolmunni

0,10

Úthafskarfi

1,09

Rækja á Flæmingjagrunni

1,30

Makríll

0,36

 

 Ofangreindir stuðlar, eru reiknaðir í samræmi við ákvæði í 19. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða með síðari breytingum og gilda við álagningu veiðigjalda samanber 8. og 9. gr. laga nr. 74/2012 um veiðigjöld.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 74/2012 um veiðigjöld og laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. júlí 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Arndís Ármann Steinþórsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 16. júlí 2012