1. gr.
Flutningur persónuupplýsinga úr landi. Fullnægjandi vernd.
Lög eftirtalinna ríkja teljast veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd samkvæmt ákvörðunum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem gilda hér á landi í samræmi við ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar, sbr. 16. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og 45. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga. Því er heimilt að flytja persónuupplýsingar til þessara ríkja, að fullnægðum skilyrðum reglugerðarinnar:
- Japan,
- Bretland,
- Lýðveldið Kórea.
Lög eftirtalinna ríkja teljast veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd samkvæmt ákvörðunum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem teknar voru fyrir gildstöku reglugerðar (ESB) 2016/679, sbr. 9. mgr. 45. gr. hennar. Því er heimilt að flytja persónuupplýsingar til þessara ríkja, að fullnægðum skilyrðum reglugerðarinnar:
- Andorra,
- Argentína,
- Kanada,
- Færeyjar,
- Guernsey,
- Ísrael,
- Mön,
- Jersey,
- Nýja-Sjáland,
- Sviss,
- Úrúgvæ.
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 16. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og kemur í stað auglýsingar nr. 228/2010 um flutning persónuupplýsinga til annarra landa, eins og henni var breytt með auglýsingu nr. 1036/2015 og nr. 953/2016. Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 4. október 2022.
Jón Gunnarsson.
Haukur Guðmundsson.
|