Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 26/2016

Nr. 26/2016 7. apríl 2016

FORSETAÚRSKURÐUR
um skiptingu starfa ráðherra.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands og forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, er störfum þannig skipt með ráðherrum:

1. gr.

Forsætisráðuneyti.

Sigurður Ingi Jóhannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir forsætisráðuneytið skv. 1. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættis­heitið forsætisráðherra.

2. gr.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Bjarni Benediktsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið skv. 2. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið fjármála- og efnahagsráðherra.

3. gr.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Gunnar Bragi Sveinsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvega- og nýsköpunar­ráðuneytið skv. 1., 3., 6. og 7. tölul. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnar­málefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið sjávarútvegs- og landbúnaðar­ráðherra.

Ragnheiður Elín Árnadóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir atvinnuvega- og nýsköp­unar­ráðuneytið skv. 2., 4., 5., og 8. tölul. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið iðnaðar- og viðskipta­ráðherra.

4. gr.

Innanríkisráðuneyti.

Ólöf Nordal fer með stjórnarmálefni sem heyra undir innanríkisráðuneytið skv. 4. gr. forseta­úrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættis­heitið innanríkisráðherra.

5. gr.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Illugi Gunnarsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og menningar­mála­ráðuneytið skv. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnar­ráði Íslands og ber embættisheitið mennta- og menningarmálaráðherra.

6. gr.

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Sigrún Magnúsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið skv. 6. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið umhverfis- og auðlindaráðherra.

7. gr.

Utanríkisráðuneyti.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir utanríkisráðuneytið skv. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættis­heitið utanríkisráðherra.

8. gr.

Velferðarráðuneyti.

Kristján Þór Júlíusson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir velferðarráðuneytið skv. 1. tölul., c–f-liðum 3. tölul., 4.-6. tölul. og 10. tölul. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið heilbrigðisráðherra.

Eygló Harðardóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir velferðarráðuneytið skv. 2. tölul., a-, b- og h-lið 3. tölul. og 7.-9. tölul. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðu­neyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið félags- og húsnæðismálaráðherra.

Með úrskurði þessum fellur úr gildi úrskurður nr. 72/2013, um skiptingu starfa ráðherra, með síðari breytingum.

Gjört á Bessastöðum, 7. apríl 2016.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Sigurður Ingi Jóhannsson.


A deild - Útgáfud.: 7. apríl 2016