1. gr.
Heiti reglnanna skal vera: Reglur um nám til lokaprófs á meistarastigi við hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglnanna:
- Fyrirsögn greinarinnar skal vera: Markmið náms til lokaprófs á meistarastigi.
- Í stað orðsins „Hjúkrunarfræðideild“ í 1. málsl. koma orðin: Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.
- Í stað orðsins „diplómanáms“ í 1. málsl. kemur orðið: lokaprófs.
- Í stað orðsins „diplómanámsins“ í 2. málsl. kemur orðið: námsins.
- Í stað orðsins „hjúkrunarfræða“ í 2. málsl. koma orðin: hjúkrunar- og ljósmóðurfræða.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „diplómanáms“ í 3. málsl. 1. mgr. koma orðin: náms til lokaprófs á meistarastigi.
- Í stað orðsins „diplómanám“ í 1. málsl. 3. mgr. koma orðin: nám til lokaprófs á meistarastigi.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „diplómanám“ í 1. málsl. 1. mgr. koma orðin: nám til lokaprófs á meistarastigi.
- Í stað orðsins „diplómanám“ í 3. málsl. 1. mgr. koma orðin: nám til lokaprófs á meistarastigi.
- Í stað orðsins „diplómanámi“ í 1. málsl. 2. mgr. koma orðin: námi til lokaprófs á meistarastigi.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „Diplómanám“ koma orðin: Nám til lokaprófs á meistarastigi.
- Í stað orðanna „að jafnaði 30“ koma: 60–89.
- 2. málsl. fellur brott.
- Á eftir 1. málsl. bætast við tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Miðað skal við að lengd námsins sé fullt nám í tvö misseri, eða hlutanám í fjögur misseri. Hámarksnámstími er sex misseri frá því að nemandi var skrásettur í námið.
- Nýr málsliður bætist við greinina, aftast, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 1. málsliðar skulu nemendur sem þegar stunda 30 eininga viðbótarnám á meistarastigi eiga þess kost að ljúka náminu samkvæmt því námsskipulagi sem í gildi var þegar þeir hófu nám.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „diplómaprófi“ í 1. málsl. 1. mgr. koma orðin: lokaprófi á meistarastigi.
- Í stað orðsins „diplómanám“ í 2. málsl. 1. mgr. koma orðin: nám til lokaprófs á meistarastigi.
- Í stað orðsins „diplómanámi“ í 1. málsl. 2. mgr. koma orðin: námi til lokaprófs á meistarastigi.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglnanna:
- Fyrirsögn greinarinnar skal vera: Námskeið í námi til lokaprófs á meistarastigi sem hluti af meistaranámi.
- Í stað orðsins „diplómanámi“ koma orðin: lokaprófi á meistarastigi.
- Á eftir orðinu „meistaraprófs“ koma orðin: eða meistaragráðu.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglnanna:
- Fyrirsögn greinarinnar skal vera: Námsnefndir.
- Í stað orðsins „diplómanám“ í 1. málsl. 1. mgr. koma orðin: nám til lokaprófs á meistarastigi.
- Í stað orðsins „diplómanáms“ í 1. málsl. 2. mgr. koma orðin: náms til lokaprófs á meistarastigi.
- Í stað orðsins „diplómanám“ í 2. málsl. 2. mgr. koma orðin: nám til lokaprófs á meistarastigi.
- Í stað orðsins „diplómanám“ í lokamálslið 2. mgr. kemur orðið: nám.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „diplómanámi“ í 1. málsl. koma orðin: námi til lokaprófs á meistarastigi.
- Í stað orðsins „Diplómanámi“ í upphafi 2. málsl. kemur orðið: Námi.
- Í stað orðsins „diplómanámi“ í 2. málsl. kemur orðið: námi.
- Í stað orðsins „diplómanámi“ í lokamálslið greinarinnar kemur: námi til lokaprófs á meistarastigi.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „diplómanámsins“ kemur orðið: námsins.
11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „diplómanám“ í 1. málsl. kemur orðið: nám til lokaprófs á meistarastigi.
- Í stað orðsins „diplómanámi“ í 1. málsl. kemur orðið: námi.
- Orðið „diplóma“ í 2. málsl. fellur brott.
12. gr.
Reglur þessar eru settar af háskólaráði með heimild í 1. mgr. 22. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 8. mgr. 97. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar hafa verið samþykktar af hjúkrunarfræðideild og stjórn heilbrigðisvísindasviðs, auk Miðstöðvar framhaldsnáms, sbr. 66. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 12. febrúar 2025.
Jón Atli Benediktsson.
|