1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:
- Við titil ákvæðisins bætast orðin: og flutningsmáti.
- Á eftir 1. mgr. bætist við ný málsgrein svohljóðandi:
Óheimilt er að flytja hunda og ketti til landsins í farþegarými flugvéla. Bann við flutningi í farþegarými á ekki við um vottaða hjálparhunda né hunda eða ketti í millilendingum á Íslandi.
2. gr.
Við 10. gr. reglugerðarinnar bætist svohljóðandi málsliður: Matvælastofnun er þó heimilt að gefa kost á að slík dýr séu tafarlaust send úr landi sé smitvörnum ekki ógnað.
3. gr.
Viðauki I við reglugerðina verður svohljóðandi:
1) Lönd án hundaæðis:
Austurríki Ástralía Belgía Bretland Búlgaría Danmörk Eistland Finnland Frakkland Færeyjar Grikkland Holland Írland Ísland Ítalía Japan Króatía
Kýpur Lettland Liechtenstein Litháen Lúxemborg Malta Noregur (að Svalbarða frátöldum) Portúgal Sameinuðu arabísku furstadæmin Singapore Slóvenía Spánn Sviss Svíþjóð Tékkland Þýskaland
2) Lönd þar sem hundaæði er haldið vel í skefjum:
Bandaríkin Bosnía Grænland Hersegóvina Kanada Pólland
Rúmenía Serbía Slóvakía Taívan Tyrkland Ungverjaland
3) Áhættulönd m.t.t. hundainflúensu:
Bandaríkin Kanada Singapore
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr og lögum nr. 55/2013, um velferð dýra.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi en kemur til framkvæmda frá og með 11. apríl 2024.
Matvælaráðuneytinu, 11. mars 2024.
Katrín Jakobsdóttir.
|