1. gr.
Af hundum í Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi skal Heilbrigðiseftirlitið innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standi undir kostnaði við framkvæmd heilbrigðissamþykktar um hundahald, sbr. 13. gr. samþykktar nr. 1348/2022 um hundahald í Garðabæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesbæ.
2. gr.
Af skráðum hundum skal innheimta árlegt leyfisgjald sem hér segir fyrir allt árið eða hluta úr ári. Innifalið í leyfisgjaldi er ábyrgðartrygging, númeraplata og umsýslugjald heilbrigðiseftirlitsins.
Ekki er innheimt leyfisgjald á því ári sem hundur er skráður.
3. gr.
Við afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta gjald sem hér segir:
|
Tvö tímagjöld heilbrigðiseftirlits |
kr. |
42.000 |
Ekki er innheimt handsömunargjald af skráðum hundum.
Greiða skal þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu.
4. gr.
Gjalddagi samkvæmt 3. gr. er 1. febrúar og eindagi 1. mars. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Gjöld skv. gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.
5. gr.
Hafi leyfishafi lokið námskeiði í hundauppeldi viðurkenndu af heilbrigðiseftirlitinu, er heilbrigðisnefnd heimilt, að fenginni umsókn, að lækka gjöld skv. 3. gr. gjaldskrár þessarar um allt að helming, frá þeim tíma sem fullnægjandi gögn voru lögð fram, enda mæli ekki önnur atriði á móti því, sbr. samþykkt um hundahald nr. 1348/2022. Skilyrt er að gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari séu ekki í vanskilum.
6. gr.
Heilbrigðisnefnd er heimilt að fella niður eða lækka gjöld skv. 3. gr. gjaldskrár þessarar af leiðsöguhundum blindra, leitar- eða björgunarhundum. Ber að sækja um slíka lækkun eða niðurfellingu gjalda sérstaklega til heilbrigðisnefndar.
7. gr.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var af heilbrigðisnefnd Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness 3. október 2023, staðfestist hér með vísun til ákvæða 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, til þess að öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1470/2022 um hundahald í Garðabæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesbæ.
Kópavogi, 4. janúar 2024.
F.h. heilbrigðisnefndar,
Hörður Þorsteinsson framkvæmdastjóri.
|