Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 896/2024

Nr. 896/2024 8. júlí 2024

REGLUGERÐ
um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2292 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar kröfur vegna komu sendinga af dýrum sem gefa af sér afurðir til manneldis og tilteknum vörum sem eru ætlaðar til manneldis inn í Sambandið.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi: 

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2292 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar kröfur vegna komu sendinga af dýrum sem gefa af sér afurðir til manneldis og tilteknum vörum sem eru ætlaðar til manneldis inn í Sambandið. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 254/2023, frá 27. október 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42, frá 16. maí 2024, bls. 15.

 Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 254/2023 og þeim takmörkunum sem leiða af I. kafla I. viðauka við EES-samninginn.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli, 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

 

 

Matvælaráðuneytinu, 8. júlí 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 24. júlí 2024