1. gr.
Í 4. gr. gjaldskrárinnar kemur nýtt ákvæði í stað núgildandi ákvæðis sem orðast svo:
Handsömunargjald og daggjald.
Gjald vegna handsömunar skráðs hunds greiðist við afhendingu kr. 15.000.
Gjald vegna handsömunar óskráðs hunds greiðist við afhendingu kr. 45.000.
Umsýslugjald vegna óskráðra hunda greiðist við hverja umsýslu kr. 45.000.
Að auki skal greiða daggjald kr. 3.850, fyrir hvern heilan dag, fyrir þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds, þ.m.t. útkall starfsmanns, fóðrun og auglýsingar. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu.
2. gr.
Auglýsing þessi um breytingu á gjaldskránni öðlast gildi við birtingu.
Samþykkt í bæjarstjórn Akureyrarbæjar 6. desember 2022.
F.h. Akureyrarbæjar, 9. desember 2022,
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður/persónuverndarfulltrúi.
|