Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1665/2021

Nr. 1665/2021 28. desember 2021

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 640/2021, um veiðar á makríl.

1. gr.

3. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 10% umfram aflamark í makríl á árinu 2021 og dregst sá umframafli frá aflamarki þess á árinu 2022. Heimilt er að flytja allt að 15% aflamarks fiskiskips í makríl frá árinu 2021 til ársins 2022. Flutningsheimildir samkvæmt þessari grein eiga einnig við um aflaheimildir sem skip fá úthlutað af aflamagni sem dregið er frá upphaf­legri úthlutun samkvæmt B- og D-lið 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 16. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og 19. gr. laga nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. desember 2021.

 

Svandís Svavarsdóttir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. desember 2021