1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:
- Orðin „aldrei lengur en“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
- Orðið „aðeins“ í 2. mgr. fellur brott.
- Við 2. mgr. bætist nýr málsliður svohljóðandi: Bráðabirgðaumboð er hægt að framlengja einu sinni til eins árs ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi sem varða ekki aðilann.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 44. gr. laga nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. desember 2021.
F. h. ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra,
Ingvi Már Pálsson.
|