Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 345/2021

Nr. 345/2021 26. mars 2021

REGLUGERÐ
um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á tollkvótum sam­kvæmt samningi milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur, sem tók gildi 19. október 2017 en kom til framkvæmda 1. maí 2018, á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og með vísun til 5. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum.

Tollkvótar samkvæmt reglugerð þessari taka til vara sem upprunnar eru í ríkjum Evrópu­sambands­ins, sbr. bókun 4 við EES-samninginn.

 

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

 

Vöruliður: Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
      kg % kr./kg
0201/0202 Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst 01.05. - 15.09.21 232.000 0 0
0203 Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst 01.05. - 15.09.21 233.000 0 0
0207 Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst 01.05. - 15.09.21 285.000 0 0
ex0207 Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu 01.05. - 15.09.21   67.000 0 0
0210 Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum 01.05. - 15.09.21   33.000 0 0
ex 0406 Ostur og ystingur (**) 01.05. - 15.09.21   77.000 0 0
0406 Ostur og ystingur 01.05. - 15.09.21 127.000 0 0
1601 Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum 01.05. - 15.09.21   83.000 0 0
1602 Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum 01.05. - 15.09.21 133.000 0 0

(**) Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbún­aðar­afurða og matvæla.

 

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.

 

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að við­kom­andi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðaryfirlýsingar að greiða andvirði tollkvóta á reikning fjársýslunnar og láta kvittun fylgja tilboðs­­gögnum.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

 

5. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið ex 0406(**) en auglýstum toll­kvóta nemur, skal ráðherra úthluta tollkvóta vegna vöruliðarins eftir hlutkesti. Hver tilboðsgjafi skal þó að hámarki hljóta 15% af heildarmagni auglýsts tollkvóta ef viðkomandi vara er skráð í samræmi við reglur um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.

 

6. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 1250/2019 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, með síðari breytingum.

 

7. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

 

8. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og 65. gr. B, búvöru­­laga nr. 99/1993, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 15. september 2021.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. mars 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Elísabet Anna Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 30. mars 2021