1. gr.
2. málsl. 4. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
2. gr.
Orðin „en með auknum ráðstöfunum skv. reglum Mannvirkjastofnunar þar að lútandi“ í 4. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar falla brott.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðsins „ferðamanna“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: gesta
- Orðin „en með auknum ráðstöfunum skv. reglum Mannvirkjastofnunar þar að lútandi“ í 2. mgr. falla brott.
4. gr.
4. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Einstaklingur sem býður heimagistingu ábyrgist að íbúðarhúsnæðið uppfylli viðeigandi kröfur laga og reglugerða um brunavarnir. Reykskynjarar, eldvarnarteppi og slökkvitæki skulu vera í íbúðinni. Uppdráttur sem sýnir útgönguleiðir ásamt staðsetningu brunavarnarbúnaðar skal festur á vegg við eða á inngangshurð í öllum gistirýmum.
5. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 með síðari breytingum, tekur þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. júní 2018.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Sigrún Brynja Einarsdóttir.
Brynhildur Pálmarsdóttir.
|